Fram­kvæmda­stjóri Ölmu í felum og neitar að svara spurningum – Vísir

8 comments
  1. Kemur ekki á óvart að þessi systkinni og þeirra börn séu siðlaus og í felum núna.

    Þá er bara finna hvaða önnur fyrirtæki Langisjór á og sniðganga, fyrirtæki eins og Ali og Matfugl.

  2. Leigusalar hegða sér eins og leigusalar. Sjokkerandi?

    Eins fyrirlitlegt og þetta lið er þá er það ekki vandamálið. Fyrirlitlegt fólk mun alltaf gera allt sem það kemst upp með. Vandamálið er þetta kerfi sem gerir þeim kleift að hegða sér svona.

    Breytum regluverkinu þannig að leigusalar geti ekki pumpað upp leigu svona, eða breytum skattaumhverfinu þannig að það borgi sig ekki.

  3. Kapítalismi virkar ekki að eilífu af því sumt fólk er óstjórnlega gráðugt, og kerfi kapítalismans leyfa þeim að bæði virkja, og afsaka (fyrir sér), það sem annars ætti að vera talið mannlegur löstur.

  4. Ég væri til í algjörlega biluð lög sem gera það að verkum að svona fólk verður að mæta og svara fyrir sig.

    Ekki þegar það er hentugur PR tími í boði.

    Ekki þegar það er hægt að fá þægilegt viðtal í viðskiptablaðinu.

    Ekki þegar búið er að semja yfirlýsingu.

    Ekki þegar búið er að ráða almannatengslafyrirtæki til að sjá um spunann.

    Heldur mætti draga fólk út á nærfötunum þess vegna til að svara fyrir sig… núna.

  5. >Leigufélagið Alma er í eigu eignarhaldsfélagsins Langasjós. Það eru í eigu systkinanna Guðnýjar Eddu, Eggerts Árna, Halldórs Páls og Gunnars Þórs Gíslabarna sem **keyptu allt hlutafé í Ölmu árið 2021 fyrir ellefu milljarða króna.**

    >Alma, sem áður hét Almenna leigufélagið og var í eigu GAMMA, dótturfélags Kviku banka, var árið 2021 með um 1100 íbúðir í rekstri, flestar á höfuðborgarsvæðinu, og **voru heildareignir þess tæpir 47 milljarðar um mitt ár 2020.**

    Hvað í fjandanum gerðist þarna?

Leave a Reply