Ef frídag ber upp á laugardag eða sunnudag skal frídagurinn færast á næsta virkan dag á eftir sem ekki er frídagur

6 comments
  1. Heitir bank holiday í Bretlandi og er einnig til í mörgum öðrum löndum. Mjög undarlegt að þetta hafi aldrei verið til umræðu á Íslandi.

  2. Ég styð þetta 100% en hef aðeins verið að pæla, hvernig virkar þetta fyrir vaktafólk? Ef þú t.d vinnur sunnudag 1. jan þá er það rauður dagur en svo er líka frídagur 2. jan sem er mánudagur. Er maður þá á helgarkaupi?

  3. Þetta er hið besta mál. Jólin eins og þau eru ekki í ár eru ekki algeng í stóra samhenginu og þetta væri því kærkomið. Aðrir dagar eins og 1. maí mundu þá væntanlega fylgja sömu reglu.

  4. Er í alvörunni verið að leggja þetta til? Má þá ekki taka til í fimmtudagadraslinu á vorin líka?

Leave a Reply