Verða ákærðir fyrir hryðjuverkabrot

14 comments
  1. Vonandi búnir að byggja skothelt mál gegn þessum mönnum eftir þessar tólf vikur sem það tók að koma með kæruna

  2. Refsing getur varðað við ævilöngu fangelsi -Margir sem halda að þetta þýði 16 eða 20 ár en þetta þýðir að frá dómi til grafar, þetta hefur aldrei gerst á íslandi og er mjög ólíklegt í þessu máli IMO

  3. Hefur eitthvað komið fram um að þeir hafi lagt á ráðin að gera þetta?

    Eða hefur bara komið fram að þeir eru edgelord hálfvitar sem töluðu um að þeir vildu/ættu að drepa fólk.

    E: Hvaða garbage lög eru þetta um hryðjuverk

    >Fyrir hryðjuverk skal refsa með allt að ævilöngu fangelsi hverjum sem fremur eitt eða fleiri af eftirtöldum brotum í þeim tilgangi að valda almenningi verulegum ótta eða þvinga með ólögmætum hætti íslensk eða erlend stjórnvöld eða alþjóðastofnun til að gera eitthvað eða láta eitthvað ógert eða í því skyni að veikja eða skaða stjórnskipun eða stjórnmálalegar, efnahagslegar eða þjóðfélagslegar undirstöður ríkis eða alþjóðastofnunar:
    >
    >…4. raskar umferðaröryggi skv. 1. mgr. 168. gr., truflar rekstur almennra samgöngutækja o.fl. skv. 1. mgr. 176. gr. eða veldur stórfelldum eignaspjöllum skv. 2. mgr. 257. gr. og þessi brot eru framin á þann hátt að mannslífum sé stefnt í hættu eða valdið miklu fjárhagslegu tjóni,
    >
    >…
    >
    >Sömu refsingu skal sá sæta sem í sama tilgangi hótar að fremja þau brot sem talin eru í 1. mgr.

    RIP allir sem hafa talað um að halda loftslagsmótmæli með því að stoppa umferð.

  4. Á núna að reyna halda andlitinu með því að grafa dýpri holu. Það er einhverveginn alveg týpískt.

  5. “Lögregla lagði hald á tugi skotvopna, hálfsjálfvirkum þar á meðal, ásamt **þúsundum** af skotfærum.” þeir að minnsta kosti fá á sig dóm fyrir þetta eignarhald ásamt því að skaffa öðrum manni þrívíddaprentaða byssu sem notuð var í skotárás.

  6. Já en ég meina hvaða sannanir eða rók eru fyrir því að þetta sé að “stoppa áður en það gerist” en ekki að handtaka einhverja jón jónsyni án ástæðu

  7. Ef Lögreglan bara vissi um allar þær fantasíur sem ég hugsa stundum þá væri ég ekki á Reddit núna.
    Þó ég deili hugsunum mínum með öðrum í einkapósti, **dulkóðuðum**, þá er það ekki opinbert.

  8. Þeir hótuðu að ráðast á árshátíð löggunar. Ég trúi því með öllu mínu hjarta að ef þeir hefðu hótað að ráðast á árshátíð tannlækna, lögfræðinga eða bara starfsmanna bónus þá væri þetta ekki tekið svona langt.

  9. Ég hef lent í umræðum með vinum um hversu auðvelt að það væri eiginlega að valdtaka alþingi með nokkrum vopnuðum einstaklingum. Þýðir það að ég myndi gera það? Nei, þetta var frekar gagnrýni og áhyggjur hversu varnarlaust okkar þing og land virkilega er.

Leave a Reply