Er ég sá eini sem að er orðinn þreyttur á öllum þessum villum í greinum Mbl? Það koma stakar stafsetningarvillur af og til, en að flokka grein um banvæna íbúðarsprengingu í Bretlandi sem “Innanlands” er alveg yfir strikið.

4 comments
  1. Meira og minna stærstur hluti landsmanna eru orðnir mestmegnis blindir fyrir þessu.

    Ég hef á síðustu tveim mánuðum eða svo, sent in tvö innlegg í Fésbókarhóp sem ber nafnið ‘Stafsetningaperrinn’ þar sem fylgdi skjáskot af grein líkt og OP gerði hér að ofan og fengið svör eins og “Hva? hvar?” eða bara bókstaflega engin svör.

    Það virðist vera í fínasta lagi að gera grín af fólki þegar það virðist klárlega vera greindarskert eða með gífurlega lesblindu, en þegar fólk sem ætti bókstaflega að vera ritvéla-apar með auka skrefum þá missa allir vitið og innleggin eru hundsuð.
    Þreytt mál.

  2. Miðlarnir gera þetta viljandi – fyrirsagnir á hörmungarfréttum án þess að segja til um land. Landinn er aldrei að fara að smella á frétt sem heitir “Lögregla skaut bónda til bana í Noregi” en ef þú sleppur síðustu orðunum þá fer maður í panik og heldur að sérsveitin hafi misst sig fyrir utan sveitaball á Hvammstanga.

    Ég nota alltaf appið púlsinn og sía þar út erlendar fréttir, en oft eru gerð þessi “mistök” þar sem erlendar fréttir eru flokkaðar sem innlendar.

    Þetta snýst allt um smelli hjá þeim.

  3. Líka hryllilega mikið clickbait. Fyrirsögnin á að segja meira ekki bara “klikkaðu hér til að komast að því um hvað er einu sinni verið að tala”.

Leave a Reply