„Ég var fokking graður og ég gat ekki stjórnað mér“ – Vísir

6 comments
  1. Ég skil ekki hvernig fólk getur lesið frétt eins og þessa, svo snúið sér við og tuðað yfir því að nöfn séu rituð á spegla eða menn nafngreindir í podcasti í staðinn fyrir að nota kerfið og þegja, höfuðáherslan á að þegja.

    Einhverjir notendur hérna voru svo sáttir um daginn þegar kom í ljós að ekki öll nöfn skrifuð á spegla höfðu rökstuddan grun fyrir broti og að ein kona var sakfelld fyrir að ljúga um nauðgun. Svona sé raunveruleiki dómstóls götunnar bentu þeir á, þetta gerist þegar við bara trúum fólki án spurninga.

    Dómstóll götunnar, speglakrot og Edda Falak eru til útaf þessu réttarkerfi sem birtist í fréttinni. Réttarkerfi sem virðist vinna með nauðgurum og gegn fórnarlömbum.

    Ég skil ekki hvernig nokkur maður (því þetta eru að lang mestu karlmenn sýnist mér) getur lesið þessa frétt og ekki skilið það fólk (að lang mestu konur sýnist mér) sem segir *nei, ég hef enga trú á að þetta kerfi sé að vinna fyrir mig og að þar sé að finna réttlætið. Ég ætla annað.*

    Og í þokkabót skammast út í það fyrir að velja dómstól götunnar fram yfir kerfið í fréttinni. Kallað það jafnvel glæpamenn og ógn við réttaríkið. Við erum í þessari stöðu *útaf* réttaríkinu. Lögreglan, lögmenn, dómarar, alþingi og ráðherrar geta sjálfum sér um kennt fyrir að dómstóll götunnar sé orðinn svona vinsæll.

    Btw…

    Hefur einhver athugað hvort þessi maður þekki einhvern í löggunni? Tvö ár í að rannsaka mál raðnauðgara með játningu fyrirliggjandi…

  2. Mér finnst þetta skítafrétt.

    Ljóst er að þarna er siðferðisvitund verulega brengluð bæði hjá stráknum og ekki síður blaðamanni að hafa þetta eftir í frétt.
    Hvað strákinn varðar þá þarf hann sálfræðimeðferð frekar en refsingu ef þetta er það eina sem hann hefur á samviskunni.
    Þetta voru krakkar þegar málið hófst.
    Ótrúleg málsmeðferð hjá lögreglu minnkar ekki sök en að refsa óskiorðsundið hefði verið hneyksli.
    Spurning með blaðamanninn, hvort hann ætti að halda áfram að skrifa svona. Nei, ég held ekki.

  3. “vegna ungs aldurs mannsins og tafa á málsmeðferð var dómurinn skilorðsbundinn. Réttargæslumenn ýttu ítrekað á eftir lögreglu að senda málið til saksóknara.”

    Ah já gamla góða “refsing skilorðsbundin vegna tafa við málsmeðferð”. Þetta væri ógeðslega fyndið ef þetta væri ekki hræðilegt.

  4. Ég held ekki að hér sé um týpískt “klámvæðing og vanþroskað siðferði” dæmi að ræða. Af orðræðu drengsins dreg ég þá ályktun að hér þurfi verulegt inngrip, bæði sálfræðiaðstoð og afplánun í fangelsi, til að koma drengnum í skilning um alvarleika brota sinna. Vonandi sér hann næst hag sinn í að stjórna sér þegar hann er graður.

Leave a Reply