
Ég veit að enginn fjölmiðill er búinn að skrifa um þetta svo ég get verið á undan með þessar fréttir, en Strætó er búið að vera rekið með milljarðs tapi frá 1. jan til 30. sept. Samkvæmt árshlutareikningi er Strætó búið að tapa 460 milljónum króna á milli 30. júní til 30. september.
​
Ég veit að þetta er soldið hrátt hjá mér en mig langaði að benda á mettap hjá strætó enn á ný fyrst enginn er að tala um þetta.
​
Heimildir:
[https://straeto.is/um-straeto/fundargerdir-fjarhagur-utgefidefni/fjarhagsupplysingar](https://straeto.is/um-straeto/fundargerdir-fjarhagur-utgefidefni/fjarhagsupplysingar)
9 comments
Finnst pínu galið að það sé alltaf einblínt á hagnað eða tap þessarar samfélagsþjónustu.
Wait ertu að ýja að því að samfélagsþjónustur séu meingallaðar því þær skila ekki hagnaði?
Hvernig myndi ísland lýta út ef það væri tilgangurinn með samfélagsþjónustum? Á gæslan að leggjast í víking og draga gámaskip sem þeir rændu til hafnar?
Ætti sjúkrahús og háskólar að vera reknir eins og í USA?
Gett a grip maður.. þetta er meingölluð hugmynd og en verri er hugmyndafræðin sem staðfastlega heldur því framm að þetta sé ekki steypa.
Það er búið að fjalla helling um þetta í fjölmiðlum
Reykjavík verdur audvitad ad hafa strætó samgöngur en strætó er virkilega illa rekid. Forstjórinn segir aldrei neitt þegar talad er vid hann eins og pólitíkus svo hann er greinilega vandamál i rekstrinum og örugglega margir adrir. Strætó gæti audveldlega 2-3 faldad fjöldann sem notar hann ef þad væri ekki þessir aular sem eru ad reka þetta i dag. Man ad strætó var miklu betri fyrir 25 árum sídan med ad vera á réttum tímum og keyra ekki fram hjá manni. Laga bidstödvar, betri upplýsingar á bidstödunum , taka kvartanir alvarlega, taka aftur upp hradvagna og endurskipuleggja ferdir svo þær fari betur um hverfi og á raunhæfum tímum fyrir bílstjórana væri stór plús med ad reyna ad laga þetta og gód byrjun.
Og hvað með það þótt samfélagsleg þjónusta sé rekin me tapi.
Fult af fyrirtækjum er rekið með tapi og þykir það eðlilegt þegar verið er að byggja upp rekstur.
Samgöngur eiga ekki að vera rekin í hagnaðarskyni. Þetta er fyrst og fremst þjónusta
Hvar ert þú búinn að vera, tap strætó hefur verið reglulega í umræðunni, núna síðast í Nóvember ef ég man rétt.
Voru alveg reglulega póstar hér um strætó líka.
Samkvæmt 2020 ársskýrslu Vegagerðarinnar voru tekjur stofnunarinnar 233,3 milljónir króna á meðan útjöld voru rúmir 44 milljarðar. “Tapið” hjá Vegagerðinni var því 43.9 milljarðar króna árið 2020.
Leiðarinn í Stundini fjallaði að hluta til um þetta. https://stundin.is/grein/16289/folkid-sem-efldi-straeto-laekkadi-skatta-og-lagadi-loftslagid/