Engar gribbur hjá Útlendingastofnun

6 comments
  1. Er RÚV ekki búið að ganga einum of langt með því að gera jóladagatalið pólitískt? Hvað ef þetta hefði verið í hina áttina, þ.e. dregin hefði verið upp (ýkt og ósanngjörn) mynd af ofbeldisfullum/stelandi hælisleitanda?

    Held RÚV hefði frekar átt að halda sig við almenna, fallega og ópólitíska sögulínu á borð við Á baðkari til Betlehem.

  2. Það væri kannski beittara hjá Útlendingastofnun að halda fram að hún fari bara eftir lögum ef það væru ekki ítrekað að koma dómar um að stofnunin sé að fara of geyst.

    Það er klárlega vandamál að lögin eru allt of harkaleg og draga úr réttindum fólks, og eru síst að skána.

    En, það er bara algjörlega líka þannig að Útlendingastofnun gengur lengra en hún þarf, með meiri hörku en hún þarf, og virðist taka það í eigin hendur að gera fólki lífið enn erfiðara en lögin gera kröfu um.

    Ég þekki eitthvað af íslendingum sem eru gift fólki frá útlöndum (frá mismunandi heimsálfum, með mismunandi tekjur og mismunandi menntun) og ég þekki engin dæmi þess að afgreiðsla hafi ekki dregist, umsóknir ‘týnst’ og þurft að senda inn trekk í trekk, frestir látnir líða án þess að láta fólk vita ef það vantar frekari gögn, og bara allt gert til þess að bregða fæti fyrir fólk, hægja á, tefja og reyna að gera allt til að sem fæstar umsóknir klárist.

    Svo það er bara kjaftæði að útlendingastofnun sé ekki sjálfstætt vandamál, burt séð frá því vandamáli sem löggjöfin er.

  3. Ég er sammála skoðuninni sem er birt í þáttunum en maður spyr sig hvort að barnatíminn sé viðeigandi vettvangur fyrir þær.

    Þetta er reyndar í semi-trúarlegu samhengi (jóladagatal) svo það mætti auðvitað taka bæði trúarbrögð og pólitík út fyrir sviga.

  4. > Enginn er því sagður þurfa að óttast heimsókn til stofnunarinnar.

    hvað með mennina frá Palestínu sem UTL lokkaði til sín? lögreglan sat fyrir þeim og réðst síðan á þá með ofbeldi:

    * https://grapevine.is/news/2021/07/06/two-palestinians-forcefully-arrested-at-immigration-centre-police-confiscate-evidence/
    * https://grapevine.is/news/2021/07/08/one-hospitalised-other-deported-after-violent-arrest-at-immigration-centre/
    * https://www.mannlif.is/frettir/einkavidtal-mannlifs-mer-er-skellt-med-hofudid-i-bordid-og-eg-er-jarnadur/

    í maí á sama ári var annar maður frá Palestínu handtekinn með ofbeldi þegar hann reyndi að leita sér læknishjálpar:

    * https://grapevine.is/news/2021/05/19/refugee-from-gaza-violently-arrested-trying-to-admit-himself-to-psychiatric-care/

    síðan eru það eru ekki nema nokkrar vikur síðan 18 einstaklingum var brottvísað með valdi, og brottvísunin síðan dæmd ólögleg af hérðasdómi:

    * https://www.visir.is/g/20222351376d/-eg-er-mjog-gladur-ad-vera-kominn-aftur-til-islands-
    * https://grapevine.is/news/2022/11/03/asylum-seekers-rounded-up-arrested-en-masse-and-deported-to-greece/

    þetta er að sjálfsögðu ekki tæmandi listi, en þetta er til skammar.

  5. https://is.wikipedia.org/wiki/Agnar_Eldberg_Kofoed-Hansen

    Nasisti stofnaði “útlendingaeftirlitið” hann trúði á arfgengi glæpahnegðar til dæmis. Stofnunin fer enn fram úr sér eins og dæmin sanna og ganga lengra en lögheimildir eru fyrir. Þrátt fyrir að það séu engin lög um að stofnunin þurfi að beita öllum heimildum eins og hægt er. Það er stefna að reyna allt til að senda sem flesta út án efnislegrar meðferðar t.d.

Leave a Reply