> Hámarkshraði verður lækkaður um alla borg á næsta ári í annað hvort 30 eða 40 kílómetra á klukkustund á götum þar sem hámarkshraði var áður 50 kílómetrar á klukkustund.
Ég þarf ekki að taka fram skoðun mína á Degi og Borgarstjórn, tel að flestir viti hana, en þetta er virkilega flott.
Mjög flott, vonandi taka önnur sveitafélög þetta til fyrirmyndar.
Jæja, nú fer löggimann að safna í baukinn
Svo skiptir auðvitað meira máli hvernig göturnar eru hannaðar! Ef gata er breið og bein þá býður hún uppá hraða, götur í íbúðahverfum ættu að vera þröngar og ekki að vera beinar því það gerir erfiðara að keyra hratt!
Það að breyta því hvað stendur á skiltum hefur engin áhrif á hvernig fólk keyrir.
Ef að það er vandamál hvað fólk keyrir hratt (sem veit ekki hvort að er rétt og tek enga afstöðu) þá þarf að breyta akstursskilyrðum þannig að fólk er neytt til þess að keyra hægar t.d. með hraðahindrunum eða óþarfa beygjum.
En á sama tíma skýst fólk framhjá manni á leifturhraða á göngustígum.
Fínt að búa utan borgarinnar
Skiptir ekki svo miklu máli maður kemst varla yfir 15 í traffíkinni
Er þetta ekki planið frá dönsku verkfræðistofunni sem gerði úttekt á hagkvæmni borgarlínu? Eitthvað rámar mig í að planið hafi verið að hægja á umferð og gera ómögulega til að neyða fólk til að nota stætó/borgarlínuna. Sýnist þetta fyrsta skref.
Samt vitað með löngum fyrirvara, var boðað einhverntíman í fyrra í framhaldi af umræðu um svifryksmengun vegna nagladekkja, ætti þá ekki hraðinn að verða meiri á sumrin? Nei bara spyr..
Samt óþolandi fyrir fólk eins og mig, sem keyrir á löglegum hraða því það virkilega tímir ekki að borga ský high hraðasektir..
Umferðaröryggi er umræðan núna, en er það virkilega málið? Ég efast um að þetta geri neitt öruggara…
Gott að koma af 80km/klst vegi yfir á 30-40 núna á næsta ári..
Á Bústaðaveginum frá Kringlumýrarbraut að Hringbraut er hámarkshraði 50km/klst. Þar keyrir enginn á 50, ekki aldraðir, ekki lögreglan, ekki krakkar í æfingaakstri. Ég get ekki séð að það sé vit í almennri lækkun sem tekur ekki tillit til þess hvort núverandi hámarkshraði sé í samræmi við aðstæður.
11 comments