Svona meðferð á skattpeningum ætti að vera flokkuð sem þjófnaður og spilling. Fólk hefur sennilega verið tekið úr umferð fyrir minna.

[https://www.visir.is/g/20222352443d/fram-kvaemda-stjori-n4-er-mag-kona-nefndar-manns-fjar-laga-nefndar](https://www.visir.is/g/20222352443d/fram-kvaemda-stjori-n4-er-mag-kona-nefndar-manns-fjar-laga-nefndar)

5 comments
  1. Af hverju er gagnslaust kjördæmapot og augljósir pólitískir vinagreiðar og aðrir bittlingar ekki lögbrot?

    Af því fólkið sem myndi brjóta þau lög er fólkið sem semur lögin, og yfirmenn þessara skíthæla eru af einhverri ástæðu ekki að sinna vinnunni sinni og leyfa þessvegna undirfólkinu sínu að gera hvað sem er.

    Við öll erum yfirmenn þessa skíthæla samkvæmt skilgreiningu. Við erum samt meðvirkustu yfirmenn í heimi, og það virðist algerlega ófær um að taka ábyrgð á starfinu.

    Svo eru náttúrulega slæm epli hingað og þangað sem fíla þetta í drasl, eða græða nóg á þessu til að láta þetta sem vind um eyru þjóta. En þau eru í minnihluta af því ef allir höguðu sér svona þá væri samfélagið bara kaos og træbalismi.

  2. Það er buið að segja að þetta sé ekkert mál. Nefndarmaðurinn var ekki vanhæfur vegna þess að þá væru allir bændur vanhæfir á þingi við afgreiðslu á einhverju tengdu landbúnaði.

Leave a Reply