
Hæ. Eg er að læra íslensku og mér finnst skemmtilegt að lesa Sci-FÍ og YA bækur. Sumir af mínum uppáhalds höfundum eru Hildur Knútsdóttir og Sif Sigmarsdóttir.
Ég er nýbúinn að lesa “Ég er Svikari” og “Mikrið milli Stjarananna“.
Getur einhver mælt með sambærilegri rafbækur?
***Update***: Þakka ykkur öllum. Ég hef byrjað að lesa [Banvæn Snjókorn](https://www.forlagid.is/vara/banvaen-snjokorn/) efitr Sif Sigmarsdóttur og ég er að hana.
12 comments
Vættir eftir Alexander Dan er frábær og passar vel eftir myrkrið milli stjarnanna. Svolítið öðruvísi en góð saga og vel skrifuð
Ég er líka að læra íslensku og er nýlega búinn að lesa “Furðufjall Nornaseiður” sem er YA fantasía. Mér fannst hún mjög skemmtilegt. Ég mæli með henni.
Prófaðu LoveStar! Það er erfitt að finna skemmtilegri vísindaskáldskap (SciFi) frá Íslandi. Verst hvað hún er stutt.
Verð annars að viðurkenna að ég veit ekki hvað “YA” stendur fyrir.
Vestur í bláinn, er um vesturfarana. Veit ekki alveg hvort hún sé til sem rafbók en hún er til sem hljóðbók
Truflunin og Dáin heimsveldi eftir Steinar Braga
Kennarabækurnar eftir Bergrunu Írisi. Þær eru flokkaðar sem barnabækur en mér fannst þær frábærar. Kennarinn sem hvarf, Kennarinn sem hvarf sporlaust og Kennarinn sem fuðraði upp.
Endilega kíktu á “Vetrarfrí” og “Vetrarhörkur” eftir Hildi Knútsdóttur ef þú ert ekki búinn að lesa þær. Miðað við lýsingu á smekki þínum munt þér líklega líka við þær. “Vetrarfrí” er fyrri bókin, “Vetrarhörkur” framhaldið.
Orrustan um Fold (sci-fi) og Í skugga skrattakolls (fantasía) eftir Davíð Þór Jónsson.
hrafn hvíslanna! (þríleikur) reyndar eftir danskan höfund en þýddar á íslensku! og mjög góðar fantasíu/YA
Sjálfstætt Fólk
Mæli með Sterk eftir Margréti Tryggva & Eyland eftir Sigríði Hagalín!
Skuggabrúin eftir Inga Markússon er virkilega flott