Alma er að tapa á þessari leigu. Ef það kæmi leiguþak væri það mun hærra en það sem Alma er að leigja þetta á (sem er í raun 3% hærra en fyrra verð, án niðurgreiðslu).
Dýrasta íbúðin sem þeir eru með er 130 fm og kostar um 110 mkr. Alma leigir þetta á 365 þkr á mánuði sem eru um 4,4 mkr á ári. Ef Alma seldi þessa íbúð frekar og setti peninginn á bankabók væri hagnaðurinn 6,6 milljónir á ári. Sem sagt, þeir eru að tapa rúmum 2 milljónum á þessari leigu.
Ég er ekki ósammála að á yfirborðinu lýtur út fyrir að Alma sé að fara yfir strikið. Mér finnst samt fréttaflutningurinn í mörgum (þó ekki öllum) tilfellum ekki gefa skýra sýn á heildarsamhenginu t.d. samanburður við vísitölu leiguverðs fyrir íbúðir með sambærilega stærð og staðsetningu. ~~Mér finnst þessi grein sérstaklega slæm óháð því hvað fólki finnst um þetta leigufélag.~~
> Tilraunir til að fá Ölmu til að innheimta lægri leigu hjá flóttamönnunum hafa ekki borið árangur.
Af hverju kemur þetta fram eins og það sé sjálfsagt að einkarekið fyrirtæki beri kostnaðinn á að hýsa flóttafólki? Var eitthvað samkomulag gert sem var brotið? fréttin minnist ekkert á það.
~~Mér þykir líka einstaklega grunsamlegt að fréttin talar einungis um prósentuhækkun. Þeir eru greinilega með rauntölurnar, af hverju vilja þeir ekki gefa þær upp?~~
Hversu gamalt var seinasta verðlag? Það getur skipt miklu máli, sérstaklega þegar húsnæðismarkaðurinn er að breytast svona mikið á stuttum tíma.
Ég er ekki að segja að hörð viðbrögð eigi ekki rétt á sér. Mér finnst bara mikið af fréttaflutningi vera svo takmarkaður að það er engin leið til þess að mynda upplýsta skoðun á þessu.
Edit: leiðrétt þar sem ég var dumb og fattaði ekki að paywall var að minnka greinina
2 comments