
[https://www.dv.is/frettir/2022/12/21/gunnar-buinn-ad-fa-nog-segir-vidtalid-vid-alexondru-hafa-minnt-grinskets-ur-fostbraedrum/](https://www.dv.is/frettir/2022/12/21/gunnar-buinn-ad-fa-nog-segir-vidtalid-vid-alexondru-hafa-minnt-grinskets-ur-fostbraedrum/)
Ímyndaðu þér eftirfarandi:
Þú ert kosinn inn hjá þínum flokki í sveitarstjórnarkosningum. (Ekki í RVK) Frábært!
Ert með sirka 800k í laun (ekki í borgarstjórn) og þarft að sækja fundi frá 10-15 kannski aðeins lengur ef einhver flokkur er með leiðindi.
Þig vantar aðeins betri laun. Ekkert mál! Stjórin var að skipa nýja nefnd um tíðni snjómoksturs í umdæminu sem á að skila af sér áliti eftir 8-12 mánuði. Aukaleg laun fyrir erfiðið er 100k á mánuði. (Ekki skylda fyrir nefndina að koma með úrræði til umbóta)
Okay snilld! Kominn með 900k á mánuði! En væri gott að fá aðeins meira, ekkert mál. Copy/paste á hina nefndina á einhver mál sem enginn veit um.
Annað sem er gott fyrir þig sem starfsmann borgarbúa. Færð allt niðurgeitt! Akstur hingað og þangað, fæði og annað. Síðan eru ráðstefnur sveitarstjórnarfólks með reglulegu millibili sem er ekkert annað en fyllerí í boði borgarbúa á bestu hótelum landsins. Færð kannski að hitta Dag og Einar! og hver veit um smá trúnó með þeim á Höfn í Hornafirði.
Þetta er það sem við erum að þræla fyrir, að fólk sem á að gera lífið okkar svo gott með þeirra viðveru í einhverju lúxusbæli og ekki gleyma, við borgum fyrir djammið þeirra líka.
2 comments
Ætla að fá að setja hérna inn hluta úr svari sem Pawel skrifaði á fb um daginn þar sem hann fjallar um akkúrat þetta
>Forgangsröðunin og allt það er ákveðin í þjónustubók sem ákveðið hefur verið að endurskoða. Hér verð ég að segja að mér finnst ekki mjög fallega vegið að minni ágætu samstarfskonu Alexöndru Briem, og hún dálítið hædd, fyrir að leggja til að stýrihópur yrði stofnaður um þessa vinnu (sem hún gerði um leið og hún tók við skipulaginu núna í haust). Ég veit að þetta liggur vel við höggi (“enn einn stýrihópurinn, af hverju brettir fólk ekki bara upp ermar og gerir hluti!”) en er ósanngjarnt.
Það er auðvelt að hæða þetta vegna þess að fólk heldur að stýrihópar séu A) óþarfa flækja B) mjög margir C) gagnslausir. Til að drepa fólk endanlega úr leiðindum mun ég nú hrekja þetta allt.
A) Stýrihópar eru bara góð stjórnsýsla. Og við höfum margoft fengið ábendingar frá t.d. ríkisendurskoðun um að við eigum að gera hluti nákvæmlega svona. Kjörinn fulltrúi (nema borgarstjóri) hefur nákvæmlega ekkert vald til að “bretta upp ermar”, gefa starfsfólki fyrirmæli eða gera tillögur að breyttu verklagi. Hann getur bara gert það í gegnum afgreiðslu á fundi, t.d. fundi sveitarstjórnar, fundi fastanefndar, nú eða ef menn vilja afmarka eitthvað verkefni þá geta menn búið til ad-hoc nefnd sem heitir stýrihópur.
Þá er búið til erindisbréf og þá er nákvæmlega skýrt hverjir eru í hópnum, hvað þau eiga gera, hvað þau fá langan tíma, hver sé þeim til aðstoðar, hvað vinnan má kosta mikið og hver borgar. Bara gott verklag og núll ástæða til að hæðast að því.
B) Þeir eru ekkert það margir. Á seinasta kjörtímabili stýrði ég fjórum stýrihópum í allt tímabilið. ÞAð er öruggleag dæmigert fyrir fulltrúa í meirhluta. Enda eru þeir svona 40 á kjörtímabili en starfa ekki allir í einu. Kannski bara nokkra mánuði í senn.
C) Allir mínir stýrihópar skiluðu á tíma. Einn skilaði nýrri íþróttastefnu til 2030. Sá næsti forgangsraðaði öllum óskum um íþróttamannvirki í reykjavík. Sá þriðji bjó til nýjar reglur um frístundakort til að auka notkun þess og sá fjórði fylgdist með innleiðingu hjólastefnu. Allt frekar hnitmiðuð vinna.
Þannig að mér finnst þessi umræða um stýrihóp Alexöndru vera á miklum villigötum. Fólk er skiljanlega pirrað, og ég er alveg sammála um það að borgin hefði og átti að gera betur. En að taka það út á Alexöndru sérstaklega af því að hún minntist á þennan stýrihóp (sem nb var löngu búið að stofna, hann var ekki stofnaður sem viðbrögð við síðustu helgi), sýnir bara algjörann skort á skilning á hvernig stjórnsýsla virkar og hvaða valdheimildir borgarfulltrúar í rauninni hafa.
Nohh. Teknókrati úr teknókrataflokknum að koma með teknókratiskar útskýringar á afhverju teknókratísku lausninar virka ekki. Sá þetta ekki fyrir.