Þöggun í gangi um Guð segir biskup í frétt á Ríkisútvarpinu.

11 comments
  1. Réttlát þöggun í gangi um guð er betri lýsing.

    Það er gagnrýnisvert að kirkjan er að ganga inn í grunnskóla með boðskap ef það er ekki sama gert fyrir múslima, gyðinga, satanista, ásatrúandi og trúleysingjafélög.

    Betra að sleppa öllu svoleiðis og halda trúmál frá ríkismálum.

  2. Þjóðkirkjan er svo ótrúlega gerilsneydd að hún getur ekki einusinni myndað sína eigin umræðu. Íslenskir prestar þurfa stöðugt að hengja sig utan í þjóðfélagsumræðuna og reyna einhvernveginn að tengja hana sínum eigin málefnum..

    Er hefndarklám vandamál í þjóðfélaginu? Jesú var jú fyrsta hefndarklámsfórnarlambið! https://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/04/05/krossfesting_jesu_hefndarklam/

    Er einhver MeToo bylgja að tröllríða landinu? Jesús var fyrsti MeToo aktivistinn! https://kirkjan.is/kirkjan/tru.is/grein/?itemid=3a83e8b1-2a11-ea11-810a-005056bc594d

    Er verið að þagga í umræðu um geðheilbrigði í samfélaginu? Það er verið að þagga niður í guði!

    Þessi svokallaða þjóðkirkja er til skammar og biskupinn ætti að henda sér í læk

  3. Þetta er svona who gives a fuck dæmi. Eitthver fortíðardraugur sem lifir á fólki sem hefur orðið fyrir trauma eða illa gefnu fólki.

    Sennilega fyndnasta við þetta dæmi er sjálfstæðisflokkurinn sem segist vera kristinn en er svo meira líkur kaþólsku kirkjunni heldur en ímyndinni af jesus.

    Ef að þetta lið væri ekki að reyna komast í skólana aftur, þá myndi maður ekki taka eftir þessu, er svo ámátlegt þetta grey.

  4. Þöggun um Guð segir biskup..

    “í jólaprédikun biskups í Grafarvogskirkju sem bæði var **útvarpað og sjónvarpað.**”

    kaldhæðnin er áþreifanleg.

  5. Einasta trúfélagið á íslandi sem er með morgunbæn á hverjum morgni í ríkisútvarpinu.

    Alveg óþolandi að geta ekki hlustað á rás 1 á morgnana án þess að þurfa að sitja undir svona kjaftæði.

  6. Fyrir 10-15 árum ákvað ríkiskirkjan að breyta um taktík útaf stöðugri gagnrýni sem hún varð fyrir, m.a. vegna þess að hún herjaði á leik- og grunnskóla í auknum mæli. Taktíkin gekk út á að kirkjan væri minnimáttar, lítilmagni að bera hönd fyrir höfuð sér.

    Þrátt fyrir 130+ presta og miljarða frá skattgreiðendum, takmarkalaust aðgengi að fjölmiðlum og ríkisrekinn trúaráróður í skólum heldur biskup sig einfaldlega við þessa aumkunarverðu aðferðafræði.
    Rúm 40% landsmanna eru ekki í þessum klúbb og restin meira og minna sinnulaus. Stærsta “þögguninn” sem er í gangi um Gvuð á Íslandi er gagnrýnislaus umfjöllun um kristni og sér í lagi um Lútherskuna, t.d. í kennsluefni skóla, .
    Agnes er:
    * viljandi að spila kirkjuna sem fórnarlamb
    * að ljúga þegar hún segir að börn fræðist ekki um kristna trú í skólum.

  7. “Við sem treystum þeim Guði sem Jesús birti og boðaði vitum að í öllum aðstæðum lífsins er svar að finna í Orði Guðs.”

    Hvernig væri að hætta að bulla og gera ykkur skiljanleg fyrst. Ég er að læra að kóða sem er mun skiljanlegra en þetta

Leave a Reply