Ég ef hef búið alla ævi á Íslandi og fyrir utan bílslys hér og þar þar sem ég var í bílnum en ekki mér að kenna (er ekki með bílpróf btw) þá hefur þetta verið þokkalegt svona í grófustu dráttum

Í raun hef ég aðeins eina gagnrýni á klakann, fyrir utan vopnavæðingu kommúnista, og það er hvað þið eruð öll leiðinleg (ég líka)

Alltaf þegar ég byrja að hafa áhuga á samræðum og byrja segja frá mínu sjónarhorni þá byrjar konan mín að æla, og það er sú upplifun sem ég lifi þegar ég les það sem þið eruð að tala um hérna, lífsgleðin hérna er í sögulegu lágmarki og tel ég að innri sálarlíf allra sem taka þátt sé bara crisis actors og ég horfði á Commando, Red Heat, Terminator og True Lies í gær og ég er samt á bömmer

Innan gráu veggja r/iceland bjóðast mun miklu fleiri tækifæri til að tala fallega um eitthvað sem maður blablabla, meira að segja kerfisbundið, en það eina sem allir segja er bara “ER ÞETTA FRÉTT?” eða posta um afhverju stafsetningin á [DV.is](https://DV.is) er alveg að ganga frá manni

Hvað er að ykkur(mér)

kv. amma

8 comments
  1. Ég skil þig mjög vel, við erum sérstaklega þung yfir veturnar. Það er samt alltaf mjög gott skref að fara af facebook, instagram, dv.is og reddit (ænó) og njóta tímans með vinum og fjölskyldu. Það snarhjálpar.

    Að auki, þá flutti ég erlendis fyrir nokkrum árum og hef aldrei liðið jafnvel. Ég get skippað yfir veturinn og komið í heimsókn um sumar, algjör lífsbreyting til hins betra.

  2. Við búum í frönskumælandi landi. Siðareglur eru mjög mikilvægar hérna, kurteisi er mikils metinn.
    Fyrst fannst mér það skrítið og asnalegt, en hef núna algerlega skipt um skoðun, það hjálpar fólki að ná sambandi, þó ekki nema í þessar 30 sekúndur á kassanum í bónus.

    Íslendingar eru frekir dónar.

  3. Þetta er nákvæmlega það sem ég hef verið að hugsa um í nokkur ár en aldrei náð að setja almennilega saman.

    Mundi reyndar bæta við hvað þeð er einkennilegt að allir séu einhvernvegin eins, og hversu mikið það bætir á öllu leiðindin. Það vilja allir vera spes og öðruvísi en samt enda allir með því að að éta í sömu hjörðinni.

    Ísland er reyndar alveg frábært land og ég mundi frekar hugsa mer að flytja aftur þangað en á marga aðrar staði, eftir 15 ár í tveimur öðrum löndum. Það þarf bara ekki að vera svona brjálæðislega leiðinlegt!

  4. Vopnavæðing öfgahægrimanna.

    Þú virðist hafa nota stafsetningar hjálp sem hljóp á sig.

    Viðbót: Ég notaði ekki stafsetningar hjálp og þurfti að laga.

Leave a Reply