Skattsvikarar sleppa við háar sektargreiðslur þrátt fyrir dóma – Furða sig á áhugaleysi ráðuneytisins

5 comments
  1. Sektir eru náttúrulega bara bókstaflega hannaðar til að halda almenningi réttum megin við lögin.

    Þegar þú ert farinn að sjallast með yfir milljón, hvað þá 10 milljónir, þá ertu formlega orðinn Sjálfstæðismaður og það sem þú gerir farið að heyra undir arfleifð landsins.

  2. *Í skýrslunni kemur fram að innheimtuhlutfall, eða það sem tekst að innheimta, af dæmdur dómsektum, sé verulega lágt hér á landi og lækkar hlutfallið eftir því sem sektir eru hærri eða með öðrum orðum, þeim mun hærri sem sektin er – þeim minni eru líkurnar á því að sektin sé greidd.*

    *Ríkisendurskoðun vekur athygli á því að þó að í hegningarlögum segi að við meiriháttar skattalagabroti sé hægt að dæma allt að sex ára fangelsisvist þá sé það sjaldnast gert, reyndar sé sjaldnast dæmd óskilorðsbundin fangelsisrefsing í slíkum málum. Helst séu dæmdar sektir sem svo innheimtist ekki.*

    *Í skýrslunni kemur fram að samkvæmt upplýþsingum frá Fangelsismálastofnun séu vísbendingar um að hluti dómþola átti sig á plássleysi í fangelsum og sæki vísvitandi ekki um samfélagsþjónustu og því fyrnist dómar þeirra og sektir þar með afskrifaðar. Eins sé erfitt fyrir Fangelsismálastofnun þegar dómþolar rjúfi skilyrði samfélagsþjónustu þar sem skortur sé á fangelsisrýmum og því leiði rof á skilyrðum í langflestum tilvikum ekki til frekari afleiðinga fyrir fólk.*

    ‐—–

    [Djöfulsins snillingaaaaar](https://youtu.be/IeQJkvVRwWU)

  3. Enn og aftur sýna Sjallar að þeir standa ekki fyrir jöfn tækifæri, heldur eru þeir mafía í kringum forréttindi og sérhagsmunagæslu.

    Þetta er ekki skoðannamismunur, heldur mismunun eftir skoðunum. Ekki styðja mismunun – ekki leyfa þeim sem mismuna að kalla það skoðun. Það er félagslegt ofbeldi.

Leave a Reply