Er sjálfur búin að vera fá hósta köst síðan í október. Alveg ólíft fyrir utan hjá okkur
Bý í vogahverfinu og rölti stundum í skeifuna. Gerði þau mistök um daginn að fara þangað á háannatíma og var með þvílíkt hóstakast og ertingu í lungum allan tíman sem ég var þar. Alveg fáranlegt að við skulum hafa leyft þessu að gerast. Vona að áform borgarinnar um að draga úr umferð gangi eftir.
Heimsótti miðborgina síðasta sunnudag og hef bara aldrei upplifað eins mikla díseldrullumengun, mikið verður fínt þegar þessar gömlu dollur eru komnar af vegunum. Langt frá því að vera með eðlilegt eða ásættanlegt.
Ég hef upplifað svipaða tilfinningu og hefur verið nefnd í commentum hér, nema bara að sumri til. Væri ekki tilvalið er Reykjavík færi að hreinsa göturnar sínar svona til tilbreytingar?
Hversu lengi hafa Íslendingar getað kosið inn flokka sem myndu greiða götu rafbíla? Enginn útblástur, eigin ódýr framleiðni á orkugjafa, ódýrari í rekstri? Nei, veljum frekar drullubíla svo við þurfum að kaupa rándýra erlenda drullu.
fleiri strætóstopp inn í hverfin tak
þurfum við ekki betra gatnakerfi?
og kannski dreifa aðeins borginni?
Þess má geta að það er ekki bara þessi mælistöð sem mælir NO2 á höfuðborgarsvæðinu. Á Grensásvegi er “traffic” stöð sem mælir frá umferð. Aðrar stöðvar eru bakgrunnsstöðvar, sem mæla á gróðursælli stöðum sem endurspeglar betur ástandið í íbúðahverfum.
Þarna eru t.d. Dalsmári í Kópavogi sem fer í gult eða appelsínugult þegar þetta mælist rautt á Grensásvegi. Laugarnes er önnur stöð sem svipað er ástatt um.
Sama þróun, hvernig NO2 hækkar eftir því hvað klukkan er og umferðin þá, sést líka í Hafnarfirði á mælistöðum þar, þó að gildin séu lægri.
Var á Lækjartorgi í síðustu viku og beið frá svona 16:35 til 17:20 eftir tólfunni. Hun hefði átt að koma þrisvar á þessum tíma. Engin tólfa. Svo koma tvær tólfur í röð – þessi seinni var náttúrulega tóm. Bý í Skerjafirði þar sem endastöð leiðarinnar er. Og ég hef aldrei séð Tólfuna leggja af stað á réttum tíma. Ég bókstaflega sé strætóinn gera ekki neitt. Stundum í fimm heilar mínútur.
Það er ekki skrýtið þó fólk velji að nota einkabíla þegar strætókerfið ber svona litla virðingu fyrir kúnnum sínum.
Einnig Ísland: við verðum að hægja á allri umferð, setja upp fleirri illa stillt ljós, meiri hindranir, tefja umferðina meira, mynda fleirri teppur, svo að fólk eyði sem allra mestum tíma sítjandi föst eða á lítilli ferð í umferðinni með bílana í gangi.
Það er hægt að tuða um þetta frá ýmsum hliðum, en þetta finnst mér alltaf svolítið hallærislegt.
Ég kýs frekar að keyra en annað (heilsan hjálpar ekki), en guð minn góður, hvað ég vildi óska þess að ég þyrfti ekki að eyða svona fáránlega miklum tíma í akkúrat ekki rassgat en að bíða eftir að komast áfram.
Það kemur fram í fréttinni að stærsti hluti mengunarinnar er af díselbílum. Persónulega finnst mér að það ætti löngu vera búið að banna eða stórhækka skatta á díselbíla.
Mér finnst eins og það sé horft fram hjá almennri umferðarmengun ár eftir ár, bæði svifryks og NO2. Nú er búið að banna reykingar innandyra allstaðar vegna heilsufarsástæðna. Það er samt í lagi að allir andi að sér díseldrullu dag eftir dag, jafnvel í frábæru veðri fyrir utan mengunina og þetta er bara hummað af sér því hinn klassíski íslendingur bara getur ekki hugsað sér líf án ástkæru díseldruslunar sinnar.
Eru ekki fleiri rafmagnsbílar í umferðinni núna? Mér finnst það cheap að kenna bílum eingöngu um þetta. Bæði rafmagnsbílar og nútímabílar menga minna.
13 comments