„Stórhættulegt“ að stjórnmálamenn skipti sér af kennslu – RÚV.is

7 comments
  1. >Súsanna Margrét segir mikilvægt að kennarar efli gagnrýna hugsun nemenda.
    >
    >„Mér dettur í hug pólskur ráðherra sem sagði fyrir nokkrum árum: *„Við þurfum ekki kennara sem kenna gagnrýna hugsun. Við þurfum kennara sem ala upp almennilega föðurlandsvini.“* Ég vil bara efla kennara til að spyrna fótum við þessu og sinna sínu starfi sem er meðal annars að þroska gagnrýna hugsun nemenda og vanda sig við sína kennslu.“
    >
    >Súsanna segir að ef kennarar þurfi ekki að stuðla að því að efla gagnrýna hugsun í dag, á tímum þar sem meðal annars falsfréttir fari hamförum, viti hún hreinlega ekki hvenær það ætti annars að vera.
    >
    >„Skólinn er spegilmynd samfélagsins og þegar stjórnmálamenn skipta sér af því sem fram fer í kennslustofunni þá er það bara sjúkdómseinkenni á lýðræðissamfélaginu segi ég, og það þarf að bregðast við.“

  2. Simmi og félagar eru bara að reyna að búa til svona “culture wars” einsog í ameríku. Sjá held ég flestir samt í gegnum það.

  3. Það er allt reynt til þess að afsaka áróðurinn…

    Það vita allir af hverju Simma var stillt upp hliðina á Hitler og Mussolini frekar en Ghandhi og Jóni Sigurðssyni.

    Og að bendla svona augljósum áróðri við það að “kenna gagnrýna hugsun” er ógeðslegt.

  4. [Þessi glæra](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/01/13/glaeran_i_verslo_ekki_einsdaemi/) var samt fokking bull, en ég held að flestir hafi séð það.

    * *”sterkt ríkisvald til að halda uppi lögum og reglu” —> Gestapo og SS sveitir*

    riiight, ég er EKKI aðdáandi íslensku lögreglunnar (þú getur skoðað kommentasöguna mína hérna á r/iceland ef þú vilt athuga það frekar), en að bera saman lögregluna með auknar rannsóknarheimildir og rafbyssur við SS sveitir er vangefið.

    * *”stéttaskipting er æskilegur hvati til framfara” —> “kynþáttafordómar og útrýming kynþátta”*

    Ókey, svo af því xD er ekki sammála því að allir eigi að vera jafnir þá jafngildir það útrýmingabúðum nasista? Einmitt.

    Þessi kennari ætti að skila inn passanum sínum ef þú spyrð mig, en þar hefði málið líklega átt að enda.

    Edit: vil þakka góð svör hér, ég hafði ekki einu sinni íhugað að þetta gæti verið tekið úr samhengi og gæti verið partur af umræðu um hvernig “hófleg íhaldssemi” getur snúist upp í eitthvað mikið verra, ég taldi að hér væri verið að tala um beinan samanburð, því þannig hefur málið mest verið kynnt í fjöldmiðlum. Slíkt sýnir manni líklega að þessi umræða er viljandi afvegaleidd af fólki á báðum hliðum málsins (fólkið sem hrópar “þetta er árás á þingmenn okkar” og fólkið sem segir “þetta er satt, íslenskir pólitíkusar eru fasistar”). Það virðist enginn vera eftir í miðjunni, og ég er svolítið fúll að hafa leyft mér að hoppa strax á aðra hlið málsins.

  5. Mjög margir gallharðir á því að engin pólitísk innræting sé í gangi í kennslustofum, þetta sé bara eitthvað væl og allt tekið úr samhengi.

    Þá spyr ég, hljómar [þetta](https://streamable.com/34ciuz) tekið úr einhverju samhengi?

  6. Held að það sé alveg gagnrýnisvert að hafa sett þessa glæru upp svona.

    Simmi er lélegur brandari, samt verri er bjarni ben sem lætur ódæðisverkin tala frekar en að segja beint út hvað hann er lélegur brandari.

    En hvorugir eru á stall við fasista. Höfuðpaurar glæpagengja væri betri myndlíking.

Leave a Reply