Lagið Hvílíkur Dagur, strax við fyrstu hlustun þá sé og heyri ég ekkert annað en að hann sé að syngja um að rúnka sér. Í hverju einasta erindi.

​

Mér finnst það nokkuð augjóst, en ykkur?

Þetta er fallegur morgunn
Ó svo fallegur morgunn
Vildi fagna í morgun
Svo ég flaggaði í morgun

Ég dró hann upp (dró hann upp)
Já alveg upp að húni
Já, það var sól hér í morgun
Fékk mér sólber í morgun
Því ég fól mér í morgun
Bara að njóta þessa morguns

Svo gekk ég út
Og ég lagðist í túnið
Og það eina sem ég hugsaði var

Ú lalalala hvílíkur dagur
Svo ég ætla að vera góður við mig
Maður gleymir því alltof oft að vera glaður
Staldra við og vera góður við sig

Tilveran hún tekur á
Svo ég má til með að njóta mín í smá
Oh já
(Það má, það má, það má)

Úlalalalala hvílíkur dagur
Og ég ætla að vera góður við mig
(Svo ég ætla að vera góður við mig)

Tók veröldina í höndina
Settist niður á veröndina
Horfði á sólarlag
Og ég ákvað að slaka bara á
Hætta að taka svona á

Já, bara ná andanum í smá
Oh já
Og ég horfi á fulgana
Hlustaði á fuglana syngja fyrir mig
Og það eina sem ég hugsaði var

Úlalalala hvílíkur dagur
Svo ég ætla að vera góður við mig
Maður gleymir því alltof oft að vera glaður
Staldra við og vera góður við sig
Tilveran hún tekur á
Svo ég á til með að njóta mín í smá
(Það má, það má, það má)

Úlalalala hvílíkur dagur
Og ég ætla að vera góður við mig
(Svo ég ætla að vera góður við mig)

Njóta mín, njóta mín
(Svo ég ætla að vera góður við mig)
(Svo ég ætla að vera góður við mig)

Þetta er einn af þessum dögum
Sem þarf að semja lög um
(Svo ég ætla að vera góður við mig)
(Svo ég ætla að vera góður við mig)

[https://www.youtube.com/watch?v=3X8DQ-xoq30](https://www.youtube.com/watch?v=3X8DQ-xoq30)

9 comments
  1. Rósalegt að ríma morgunn við morgunn og morgun við morgun. Og strax í upphafi lagsins, þvílíkur meistari.

    Annars já auðvelt að túlka lagið þannig, og Frikki er ekki þekktur fyrir djúpa texta og tvöfaldar merkingar.

  2. Ég stórefast um að það sé meira að frétta í skrifum Friðrik Dórs en virðist á yfirborðinu, en að hugsa um hann að runka sér er sannarlega frábært

  3. Þó hann hefði gert það, og hvað? Hann væri ekki sá fyrsti sem hefði gert það. Maður hlustar á Come Together með Bítlunum allt öðruvísi eftir að hafa lesið viðtal við McCartney þar sem hann sagði að þeir í Bítlunum hafi oft fróað sér saman.

    “Come Together…. Right now…. Over me”

  4. Friðrik Dór og bróðir hans eru báðir skelfilegir tónlistarmenn og ég er þreyttur á að láta eins og að þeir séu það ekki

  5. “veröldina í höndina” er verulega þunnt, næstum bókstafleg lýsing á sjálfsfróun miðað við að ekkert annað er að lýsa einverskonar “sigra heiminn” heldur bara að lýsa “njóta”.

Leave a Reply