
Sælir landar.
Ég ætla að láta reyna á að bora fyrir nokkrum nýjum rafmagnsdósum í gömlu íbúðinni minni, þ.e. nýjar við hliðina á gömlum dósum og fjölga innstungunum.
Ég er ekki alveg að átta mig á því hvernig dósabor ég þarf fyrir þetta. Sé að það er bæði hægt að kaupa dósir og bori sem eru 68 og 72 sm þannig ég að velta því fyrir mér hver er standardinn er fyrir þetta er á Íslandi? Eru innstungutækin ekki alltaf af sömu stærð þannig skiptir þetta kannski ekki máli?
Þetta verður svo borað í steypuvegg. Er algjör skylda að kaupa þessa tugþúsunda bori sem eru til sölu eða kemst ég upp með að nota einhvern ódýrari bor, [t.d. þennan](https://makitauk.com/product/d-73938), sem þarf ekki að endast nema í þetta verkefni? Það hefur aldrei verið neitt vesen fyrir mig að bora í þessa veggi (nema upp í loft) þannig kannski er þetta líka bara einhver múr.
8 comments
Gæti borgað sig að leigja græjuna í þetta.
Það eru líka til tvöfaldar innstungur í einfalda dós, ef það dugar þér þá er það auðveldasta lausnin.
Getur athugað hjá verkfæraleigu t.d. Byko og Húsa svo er hægt að fræsa fyrir dósinni
Minnir mig að ég notaði 68 þegar ég var að þessu í sumar. Og var akkúrat með makita bor
Kaupir bara bor í stærð miðað við dósirnar sem þú ætlar að fella inn, ef þú ert bara að bæta við dós við hliðina á þessari sem er fyrir þá þarftu líklega bara að fleyga holuna stærri.
Kemst mögulega upp með að nota bara hamar og meitil í það nema þú lendir í járni.
Fáðu þér rafvirkja til að gera þetta svo þetta sé rétt gert
Ef þetta er múr eða steypa 68mm þrykkidósir
Þetta er alveg bras fyrir óvanann einstakling. Þú þarft 68mm bor og góðir borar kosta mikið, en eru þess virði. Mæli með að fá fagmann í þetta því ef þú borar ekki nákvæmt millibil á milli dósa geturu lent í veseni með að koma rofaefninu fyrir.
Ekki nota höggið á vélinni annars stútaru tönnunum á bornum.
Það eru til bæði 68mm og 73mm eftirádósir, 68mm er algengast og hefðbundið raflagnaefni passar í hvoru tveggja. Ef þetta er bara múr þá skiptir svosem ekki miklu máli hvernig bor þú notar (bara ekki setja höggið á). En svo getur verið svipað dýrt að fá bara rafvirkja á staðinn til að taka þessi göt ef þetta er lítil vinna. Fyrir utan að taka svona göt krefst smá nákvæmni. Gættu líka að því að flest efni er bara til í 4 eininga römmum eða þarf að sérpanta ef það er meira en 4 einingar.