28 comments
  1. Þjóð föst á norðurhveli jarðar á eyju úti í hafi í myrkrinu. Annar hver maður að vinna sig í kulnun í 150% vinnu eða því hann er líka í 100% námi með 100% vinnu. Shocked. Shocked I am.

    Sjáið bara Fiskikónginn. Mega hress í auglýsingunum að selja fisk og með heita potta. Dæmi um hinn duglega multi task Íslending. Gjörsamlega búinn að vinna sig í þrot núna miðað við fréttina sem birtist um hann.

  2. Ég er á kvíðastillandi lyfjum og ég skal alveg viðurkenna að þau hafa hjálpað mér alveg svakalega. Það kom mér samt mjög á óvart hversu ótrúlega snöggur læknirinn minn var að vilja setja mig á þau. Eins og það stæði bara ekkert annað til boða.

  3. Yikes. And interesting that those “happiest “ countries have such high rates. As a US citizen I’m not surprised by our rates, it’s a very depressing country

    And I have nothing against these medications. They can be helpful. But I do think that many people would be happier and not need these medications if the world were a more supportive place where basic life necessitates were more affordable and success was a wider range of things than just making lots of money.

  4. Þetta þarf ekki endilega að þýða að við séum þunglyndari en aðrar þjóðir, heldur gæti þetta líka þýtt að fólk sé duglegt að leita sér hjálpar. Finnst þetta stundum svolítið einhliða nálgun á að við séum öll að farast úr þunglyndi og kvíða. Þetta segi ég sem tek engin lyf að staðaldri og hef aldrei gert, skil samt að lyf hafi sinn tilgang og gagnist fólki.

  5. Á meðan nokkrar familíur eiga allt, stjórna öllu og hafa einkaleyfi til að gera allt mun þjóðin bryðja pillur eins og smartís og ekki skilja hvað sé eiginlega á seiði.

  6. D-vítamín, prófið að taka það reglulega, breytti lífi mínu. Vildi bara að ég hefði vitað það fyrir 20 árum síðan, hefði sparað mér langa baráttu við þunglyndi.

  7. Annar þáttur í þessu himinháa hlutfalli er sá að þunglyndis og kvíðalyf eru aðgengilegasta úrræðið ef geðheilsunni hrakar – þú þarft ekki að veiða geðlækni sem er nánast í útrýmingarhættu hér á landi eða fara til sála og hósta upp tugi þúsunda fyrir hvert viðtal. Þú mætir bara á heilsugæsluna og segir að þér líður illa og þá ertu kominn með sertral í hendurnar. Algjör plástur til að fela úrræðaskortin í geðheilbrigðiskerfinu.

  8. Er þetta ekki bara hið besta mál?

    Íslendingar eru ekki að éta tíufalt meiri þunglyndislyf en Kóreubúar vegna þess að Íslendingar eru tíu sinnum líklegri til að vera þunglyndir. En Íslendingar eru tíu sinnum líklegri til að fá meðferð við þunglyndi.

  9. Þunglyndi er líka arfgengt, kemur ekki á óvart á incest landi að við höfum öll fengið sömu genin.

    Sjálf hef ég verið á lyfjum í 15 ár og gæti ekki án þeirra verið (hef prófað) en hef samt prófað sálfræðing, innlögn á geðdeild, ham meðferð ofl.

    Veit að OP er ekki að því, en sjitt hvað getur pirrað mig þegar fólk birtir svona með einhverju “það á ekki að taka svona pillur” attitúdi

  10. Persónulega þarf ég að vera á lyfjum vegna alvarlegs krónískt þunglyndisröskunar, kvíðaröskunar og schizophrenia. Þó ég væri til í að vera án lyfja þá er bara tilvist mín ein og sér alveg ótrúleg, hvernig í ósköpunum ég skuli ennþá vera lifandi. Það er fátt sem er að hindra mig frá því að ljúka því, en það er víst engin lausn að fremja sjálfsvíg það leysir nefnilega ekki neitt og er tímabundin lausn við tímabundnu vandamáli segja margir en þegar það hefur verið alla ævi er það raunverulega tímabundið. Ég hvet auðvitað fólk til þess að sækja sér hjálp en einnig að reiða ekki á lyf ein og sér. Það er mikilvægt að huga að því ef það séu einhverjar ástæður fyrir vanlíðan að vinna í því. Til dæmis reyni ég að verja mestu af mínum tíma í bíla því það er mín ástríða og lætur mér líða vel, það er einmitt eitthvað sem ég myndi mæla með er að gera meira af því sem þið elskið að gera hvað sem það kann að vera. Ef það er að horfa á 80s myndir þá horfið á 80s myndir, ef það er að fara hjóla farið að hjóla bara gera meira af því sem ykkur finnst gaman að gera yis. 🦊

  11. I am visting Iceland is Summer and I am genuinely baffled. I get that winters are long and brutal.

    Is it attributable to general availability?

    What about the social structure and fabric of the society? Is it there to provide support when needed?

  12. This might just mean that people have access to medication and mental healthcare, i don’t know tho lol

  13. Líkt og ég hef áður sagt.

    Ef eina verkfærið er hama þá verða öll vandmál að nagla.

    Ef við erum bara með niðurgreidd lyf þá eru öll vandamál leyst með lyfjatöku.

    Hvað með að bjóða upp á annan lífsstíl.

    * Niðurgreidd sálfræðiaðstoð
    * Niðurgreidd líkamsrækt
    * Byggja upp betra samfélag

  14. Áhyggjur af fjármálum hafa mikil áhrif á það hvernig fólki líður. Kanski ef Íslendingar heimtuðu réttlátari skiptingu á auðnum sem við framleiðum fyrir auðvaldið þá mundi það draga aðeins úr þeim áhyggjum.

Leave a Reply