Hvaða efni gæti hafa komist á pokann og náð að éta upp nýja flík?

10 comments
  1. Er búinn að reyna rekja sporin til baka og mér dettur ekkert í hug frá því að við fengum pokann í hendurnar, settum hann í kerru, kerruna í skottið á bílnum og þaðan heim að dyrum þar sem þetta slys kom í ljós. Hvaða aðgengilegu efni geta valdið þessum skaða sem dæmi?

  2. Þar sem þetta er allt brætt enn engin brunaför eins og hiti myndi gera, þá er ég nokkuð viss um að þetta hafi verið sýra. Get ýmindað mér að efra gatið á pokanum er þar sem bunan af sýrunni skauts og stoppaði á fatnaðinum, lekið svo niður í botninn á pokanum. Er einhver brennisteinslykt?

  3. Lítur út eins og eitthvað sterkt efni hafi komist í þetta. Mögulega sýra eins og Tyx sagði. Buxurnar líta út fyrir að hafa storknað og síðan molnað. Aceton eða sérstaklega sterk klórlblanda koma kannski til greina. Sýra er samt líklegust held ég því annars hefðirðu klárlega fundið efnalyktina. Var nokkuð rafgeymir eða slíkt í skottinu?

  4. Gæti verið olíur eða önnur efni, nákvæmlega sami hluturinn gerðist við nýja vinnuskirtu hjá mér man ekki hvaða vökvi það var enn daginn eftir voru blettir á henni sem molnuðu bara.

    Er með lítið verkstæði í bílskúrnum, og grunar þetta var annar hvort bremsuvökvi eða acetone. Seinna efnið getur pottþétt ollið þessu, þar sem acetone er brjálæðislega sterkt efni.

  5. Kannski vill einhver unglingur buxurnar núna þegar þær eru götóttar og nokkurn vegin ónýtar.

Leave a Reply