Guðmundur Guðmundsson hefur þjálfað íslenska karlalandsliðið í handbolta í helming þeirra skipta sem liðið hefur náð 6. sæti eða ofar á stórmóti. Ef við teljum 8. sæti eða ofar (ekki öll mót eru með 8-liða útsláttarkeppni), er Gummi með **41.18%**.

Margir hafa talað um að gengi Guðmundar með landsliðinu hafi ekki verið nógu gott undanfarið. Þó hægt sé að færa góð rök fyrir því, getur varla verið tilviljun að Guðmundur hefur náð lang besta árangri allra þjálfara með landsliðinu. Á eftir honum kemur Bogdan Kowalczyk, sem stýrði liðinu frá 1983 til 1990 og komst tvisvar í top 6 (16.67%), þrisvar í top 8 (17.65%). Eini þjálfarinn til að stýra liðinu í 4. sæti eða ofar fyrir utan Guðmund er Þorbergur Aðalsteinsson á Ólympíuleikum 1992, en hann stýrði liðinu frá 1990 til 1995. Þorbergi tókst einnig að landa 8. sæti á HM 1993 og er því með 11.76% fyrir 8. sæti og ofar.

Eftir að Guðmundur hætti störfum eftir Ólympíuleika 2012 þangað til hann tók aftur við liðinu 2018, komst íslenska liðið aðeins einu sinni í top 8, en það var á EM 2014 undir stjórn Arons Kristjánssonar. Síðan 2018, hefur íslenska liðinu einnig aðeins tekist einu sinni að komast í top 8, en það var á EM 2022.

Ber að taka fram að þetta er aðeins **tölfræði** um tíðni þjálfara sem komast með liðið í 8. sæti eða ofar. Það þarf að hafa í huga að gengi liðsins hefur alltaf verið sveiflukennt, eins og t.d. árið 1995 þegar Ísland spilaði á heimavelli á EM, en tókst aðeins að ná 14. sæti af 24 liðum, þrátt fyrir velgengni árin á undan.

Síðan má ekki gleyma því að eina skiptið sem íslenska liðið hefur ekki tekist að komast inn á EM síðustu 20 ár, var árið 2009. Það kom á milli besta árangurs liðsins 2008 og 2010.

[Hér](https://docs.google.com/spreadsheets/d/1sgDBfomnsiHBBqh_5DknXqHtrgvWSIL1P7ckBn0nYoA/edit?usp=sharing) má sjá nákvæmari tölfræði í Google Sheets skjali.

2 comments
  1. Ég hef heyrt að Guðmundur er ógeð sem barði fyrrverandi konuna sína í spað og ætti ekki að fá að þjálfa þetta landslið meira.

    Jafnvel sonur hans tók Guðmundsson út úr nafninu sínu og setti móður sína.

  2. >1995 þegar Ísland spilaði á heimavelli á EM, en tókst aðeins að ná 14. sæti af 24 liðum, þrátt fyrir velgengni árin á undan.

    1995 var eftir kynslóðaskipti, þetta var í raun allt annað lið.

    Rétt samt að Gummi er legend. Ég er heilt yfir sáttari með þetta mót en flestir þrátt fyrir svekkelsið, við erum nú rétt að koma uppúr rúmlega átta ára lægð. Ég trúi því að þetta lið muni ná undanúrslitasæti amk einu sinni á næstu fimm árum.

Leave a Reply