Heil og sæl öllsömul, og verið innilega velkomin á margspilun, matur og menning á miðvikudegi.

Hugmyndin er að fólk geti kynnt sitt samfélag (Discord/subreddit/facebook group.. o.s.frv.), einhvern menningar viðburð sem þið eruð spennt fyrir eða einhverjar kræsingar sem þið fundu.

t.d. Er bílskúrsbandið þitt að troða upp? segðu okkur frá og kannski mæta fleiri, Fórstu í bíó og ert með heita skoðun á myndinni? ert þú(eða vinur þinn) með fyrsta uppistandið? Ertu að safna liði í bumbubolta? Er roller derby liðið þitt með fjáröflunar hitting? Ný ísbúð opnuð? Ertu að stíga fyrstu skrefin í selja þína eigin hönnun? Ertu að fikra þig áfram í kökugerð? Var nýr staður að opna? Varstu að smakka eitthvað nýtt? **Við viljum heyra frá þér**.

​

Við erum með lista af væntanlegum útihátíðum á Íslandi

[Hátíðir um allt land](https://hatidirumalltland.weebly.com/)

​

Við búum svo til lista af samfélögum eða hlekki á hönnuði, föndrara eða veitingastaði/kaffihús/ísbúð sem þið mælið með.

​

Hér er pláss geymt fyrir eitthvað sem þið viljið að sem flestir sjái.

​

Við erum með Íslenska subreddita.

r/klakinn \- Íslensk jörm eftir mikla völundarsmiði. Handritin Heim!

r/Borgartunsbrask \- Íslensk fjármál, hlutabréf og fjárfestingar

r/Boltinn \- Allt sem tengist knattspyrnu, bæði innlendri og erlendri.

r/MIPMPPJWFA \- Music Icelandic people might play at a party or just with friends around.

r/Reykjavik \- Aðalmálin í borg óttans.

r/Ljod \- Ljóð, frumsaminn flest, furðuverk á flækingi.

​

Við erum með margspilunar discord rásir fyrir:

[**Smash bros**](https://discord.gg/qJrJK2AeAs) \- Smash bros ultimate félag á Íslandi, ” tiltölulega stór hópur Smash Bros Ultimate spilara á öllum styrkleikastigum sem erum með Discord þar sem við ræðum leikinn og skorum hvert á annað ”

[**Herkænskuleiki**](https://discord.gg/4gUP9WVtsa) “Crusader Kings, Europa Universalis, Heart of Iron, Stellaris, Victoria, ofl” – ” Við erum að taka vikulega leiki í Stellaris, Europa Universalis, og Crusader kings (mánudagar, miðvikudagar, og fimmtudagar). En það má alveg endilega bara spyrja fólk hvort þeim langi að spila alveg sama hvaða leikur og dagur er 🙂 ”

1 comment
  1. Þrátt fyrir frekar langan fyrirvara þá langaði mig að benda á MarioCon sem byrjar 10. mars (Mar10) í Arena (á neðstu hæð í Turninum á Smáratorgi). Fyrsti dagurinn er svona hittingur þar sem fólk kemur og spilar upp á gamanið. Næstu tvo daga verður síðan hægt að keppa í Mario Kart, Smash Bros og/eða Pokémon Scarlet/Violet. Ormsson styrkir hittinginn og ætlar að bjóða upp á vegleg verðlaun.

    Skráning hér fyrir neðan (ekki bindandi, en plís látið vita ef þið hættið við).

    https://www.start.gg/tournament/mariocon/details

    Edit: Það mun að öllum líkindum kosta inn, en verðið er ekki komið á hreint eins og er. Til viðmiðunar kostar venjulega á mót 1.900 kr. fyrir 16 og eldri og 1.000 kr. fyrir þá yngri. En stundum hefur verið hærra verð og þá pizzahlaðborð innifalið. Smash samfélagið er non-profit þannig að þetta er alltaf bara aðgangseyririnn í Arena.

Leave a Reply