Miklu betra að gefa **öllum** meðlimum Eflingar tækifæri til að kjósa með eða móti því að fara í harðar verkfallsaðgerðir frekar en þetta bull Sólveigar og co að velja bara einhver afmarkaðan hóp til að bera ábyrgðina.
Finnst fólki í alvörunni óeðlilegt að allir félagsmenn Eflingar fái að kjósa um það sem er á borðinu áður en blásið er í lúðrana og farið í stríð?
Ef þetta verður samþykkt með miklum yfirburðum eins og annarsstaðar þá verður maður að spyrja sig fyrir hverja Sólveig og samninganefndin eru raunverulega að vinna.
Þegar allt er gert til að forða verkföllum – þar á meðal að beygja skilgreiningar og fórna sóma sínum opinberlega með að taka augljósa afstöðu með öðrum samningsaðila þegar þú átt að vera hlutlausi aðilinn – þá getum við allavegna sagt okkur að verkföll ógna bæði ríkinu, og atvinnurekendum.
Oft finnst mér eins og fólkið sem er hvað mest að lýsa skoðunum sínum á Sólveigu í umræðunni um verkalýðspólitík sé mjög miki á þeirri línu að Sólveig sé bæði stórhættuleg manneskja, en líka að aðferðarfræði hennar sé algerlega andvana fædd og því þurfi að hafa miklar áhyggjur af henni en engar áhyggjur af því sem hún er að gera. ¯\_(ツ)_/¯
Þetta sýnir öllum sem hylja ekki eigin augu að Aðalsteinn vinnur ekki fyrir fólkið, hann vinnur fyrir auðvaldið, að þröngva tilboði SA á eflingu en alls ekki tilboði eflingar á sama tíma er bara valdníðsla og sviptir verkafólk samningsumboðinu.
Þið sem styðjið svona aðferðafræði ættuð að skammast ykkar
Það er dálítið project að fella miðlunartillöguna, því meirihluti greiddra atkvæða dugar ekki til, þarft líka fjórðung atkvæða allra á kjörskrá. Fyrir stórt félag með fjölda félagsmanna sem ekki tekur virkann þátt í kjarabaráttunni er ansi erfitt að smala nægum fjölda í atkvæðagreiðslu til að uppfylla það skilyrði.
Aðilar vinnudeilunnar eiga að fá að koma sjónarmiðum sínum um miðlunartillöguna á framfæri við ríkissáttasemjara áður en hún er lögð fram. Það virðist ekki hafa verið gætt að þessu í undirbúningnum. Þannig mögulega tekur tillagan breytingum áður en hún er formlega lögð fram, eða þá að framlagningin er mögulega ólögmæt.
Ég hélt að Sólveig væri svo mikill talsmaður lýðræðislegra kosninga. Hún er varla ósátt við það að leyfa félagsmönnum sínum að kjósa?
Samfélag eins og Ísland sem er rekið af fræðimönnum og fariseum er dauðadæmt. Þökk sé háskóla Íslands sem framleiðir slíkt lið á færibandi. Þeir ala á deilum fyrir völd og áhrif til breytinga sem stuðla að varanlegri sundrungu.. þá verður til sósíalist óstjórn sem fáum þjóna.
Ég get skilið að þetta sé slæmt fordæmi, en ég hef líka upplifað að margir Eflingarfélagar hefðu gjarnan viljað eiga amk. kost á að taka þessu boði, frekar en að taka sénsinn á að þau geti fengið eitthvað nógu mikið betra til að jafna út mögulegan kostnað af verkföllum og skort á afturvirkni.
Ég held nefnilega að það sé engin tilviljun að Efling valdi þannig séð verst stadda hópinn innan Eflingar til að kjósa um fyrsta verkfallið, sem er að þau hafi ekki metið stöðuna þannig að þau hefðu raunverulegan stuðning í félaginu í heild fyrir harkalegum verkfallsaðgerðum, en eru kannski að vona að með því að byrja á verkföllum þar sem þau geta fengið meirihluta fyrir því og keyra hörkuna í gang á báða bóga, þá kannski myndist meiri mórall fyrir því í félaginu í heild.
En, þetta er samt í rauninni ekki svo hrikalegt. Ef fólkinu í Eflingu finnst þetta svívirðilegt útspil, þá kýs það bara nei og það er þá bara niðurstaðan.
Ef þau eru ekki jafn mikið til í stríð og hörku og forystan, eru ekki jafn viss um að það sé þess virði, þá kjósa þau væntanlega já, og það er þá niðurstaðan.
Basically þá er þetta bara hættulegt fyrir Sólveigu Önnu og samninganefndina EF það er í raun þannig að þau hafa ekki félagið á bak við sig. Og EF það er þannig, er þá eitthvað rangt við að það komi í ljós?
9 comments

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/01/26/telur_rikissattasemjara_hafa_brotid_log/
Tvennt í þessu.