[https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/01/26/thad\_er\_enginn\_ad\_fa\_neitt\_gefins/](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/01/26/thad_er_enginn_ad_fa_neitt_gefins/)

​

Hvað er að? Fólk bara tekið land ef það setur niður girðingar og enginn gerir neitt í því? Talað svo um mikinn sigur. „Það ligg­ur fyr­ir að girðing­arn­ar eru að fær­ast inn­ar og við erum að end­ur­heimta mikið borg­ar­land. Það er eng­inn vafi um það,“ seg­ir Al­ex­andra.

​

Mér finnst þetta búa til slæmt fordæmi.

5 comments
  1. Vantar stæði hjá mér, er að spá í að færa girðinguna mína aðeins lengra þannig ég fái annað stæði.

    Þetta lið er auðvitað snarvitlaust að leyfa þetta. Meiga allir færa girðinguna núna og svo bara “kaupa” landið. Það á bara að taka þessa girðingun niður og segja þeim að halda kjafti, í staðin leggst þetta borgarfífl á hliðina og selu þeim landið, þetta gerist ekki heimskara.

  2. Kannski er ég bara svona voðalega vitlaus, en ég botna ekkert í þessari frétt.

    >Reykja­vík­ur­borg sé að end­ur­heimta mikið borg­ar­land, með því að selja nokkr­um lóðar­eig­end­um við Eini­mel land­spildu af sund­laug­ar­tún­inu við Vest­ur­bæj­ar­laug, meðal ann­ars til þess að forðast harðvítug­ar deil­ur fyr­ir dóm­stól­um.

    Hvernig er Reykjavíkurborg að endurheimta land sem það á með því að selja það svo það þurfi ekki að sýna fram á að það eigi það í raun og veru?

    Og þessi mynd mætti vera talsvert betri. Talar um “rauða punktalínan” þegar á myndinni eru tvær rauðar punktalínur, önnur úr strikum en hin bókstaflega úr punktum, og af samhengi verður maður að draga þá ályktun að með “rauða punktalínan” er ekki átt við línuna sem samanstendur af rauðum punktum, heldur línunni sem samanstendur af rauðum strikum…

  3. Því lengur sem eitthvað er látið óáreitt, því meiri hefð skapast, og enn er tekið tillit til hefðar. Þekki samt ekki með þetta sérstaka mál né neitt sérstaklega mikið um hefðarrétt en það hljómar eins og borgin hafi ekki viljað láta reyna á hefðina fyrir dómstólum.

    Hér eru lög um hefð: https://www.althingi.is/lagas/152c/1905046.html

Leave a Reply