
Er mér einnum sem finnst það áhugarvert í [stóra kókaín](https://www.dv.is/frettir/2023/1/27/johannes-sottur-til-saka-heradi-og-lexusinn-uppbodi-hja-syslumanni/) málinu að svo virðist vera sem vitað er að fleyri stæðu bakvið innflutninginn og hafa sloppið. Hvernig má það vera að fjölmiðlar eru alfarið hættir að fjalla um manninn sem vitað var að kom að málinu en enginn virðist vita hver er.
samkvæmt UNODC eða United Nations Office on Drugs and crime er gangverðið á heildsölu af kókaíni í Brasilíu 2-3 þúsund dollarar kílóið. Það er um 30-40 milljónir að því gefnu að þeir hafi fengið það á því verði en ekki hærra. Það þarf því að vera einhver fjársterkur aðilli. Samsæris hatturinn minn er kominn upp, voru gerð einhver mistök eða er verið að hylja yfir einhverjum ?
Endilega ræðið.
6 comments
Það er talað um að einn af þessum mönnum sé timbursali, og annar átti greinilega nýjann Lexus jeppa.
Hljómar svolítið eins og þessir menn geti skrapað saman 30-40 milljónir til að fjárfesta í kókaíni án utanaðkomandi aðila.
Löggan er að busta grass rætanir í stað þess að fara eftir kókaíni það er allt morandi i kóki. Þessir gæjar setja kók pening í að rækta grass. Við þurfum að lögleiða cannabis!!
heyrði að þegar hells angels voru að flytja inn mesta magnið af kóki að þeir væru með tengiaðila sem gegnir embætti, orðrómar í gegnum iðnaðarmenn sem unnu fyrir þennan/þessa aðila.
Lítið land og hópur peningamanna er fámennur og fara allir í sömu partíin? 🙂
Almannarómur segir að fjármagnseigendur séu ósnertalegir í svona málum enda hafi þeir að jafnaði einhverja til að taka sök á sig.
Sem Íslendingur trúi ég þessu vel uppá suma en allsekki alla.
Við búum auðvitað í litlu og spiltu landi og lögregla passar sig vel að ná ekki í toppana í þessum málum.