“Þegar maður verður maðkur”, er Frosti Logason ennþá relevant í dag?

13 comments
  1. Ég hef fylgst lítið með Frosta en er hann að skopstæla svona Ameríska YouTube þætti á borð við Ben Shapiro og Steven Crowder?
    Áhugavert move hjá honum miðað hversu viðkvæmur hann er.

  2. Ég er næstum því alveg út úr lúppunni. Ég veit að þetta snýst um ásakanirnar á hendur Frosta af fyrra sambandi, en hvernig og af hverju blandaðist Stefán inn í það?

  3. Þetta Brotkast hans Frosta er alveg stórfurðulegt. Ég skil ekki af hverju hann gat ekki verið aðeins léttari á því og þannig höfðað til stærri hóps.
    Svo er þetta eins og nákvæmt afrit af þáttum hjá þessum gosum í Bandaríkjunum. Má þar helst nefna Ben Shapiro og Matt Walsh. Það eru allavega mín fyrstu viðbrögð eftir að hafa horft á þessi stuttu brot.
    Frosti á bæði góðar og slæmar hliðar. Svo virðist sem það slæma sé alveg tekið yfir. Ég held að það sé klárlega hópur þarna úti sem er til í þetta nýjasta útspil hans. Spurning hversu stór hann er.

  4. Er þetta ekki bara svona kk version af Eddu Falak? Spyr því ég hlusta á hvorugt en sé endalaust af skoðunum um þetta í kommentum.

  5. Þetta Brotkast er kjánahrollur og Frosti virðist undir miklum áhrifum frá Matt Walsh sem er rugludallur.
    Hinsvegar finnst mér hressandi og mikilvægt að fá öfgar í þessa átt til að vega á móti öfgunum í hina áttina (Öfgar, Falak etc.). Það er komin tími till þess að hófsöm rökhyggja fái pláss og það skapast yfirleitt eftir að öfgar í eina átt fá mótsvar í aðra átt.

  6. Mér finnst það ekki. Hann var með áhugaverð viðtöl á Vísi og Harmageddon gat verið góður en þarna bætist hann bara í net-tuð hópinn sem úthúðar hvor öðrum stanslaust til að hrífa sína hópa.

  7. Sorglegt að sjá hann leggjast svo lágt að vera einhver rage click grifter og bootleg Jordan Peterson til þess að skrapa einhverja aura frá karlrembum og samsæris nötturum. Spurning um hvort það sé nógu stór markaður fyrir þetta.

  8. Ahh Jón Trausti með skítkast….og vatn er blautt, hvað annað er nýtt. Hvað er það samt að reyna ýja að því orðið maðkur var notað vitandi að það tengist Róhingjum og mein kampf. Hann á allavegana ekki langt að sækja það að vera með skítkast og illa skrifaðar greinar, fær það frá pabba sínum.

Leave a Reply