Árið 1979 voru Ólafslög samþykkt af Alþingi og þar voru m.a. launagreiðslur verðtryggðar samhliða allri annari verðtryggingu sem átti þar með að skapa “stöðugleika”*.
Þessi verðtrygging launa var talin vandræðagripur, og verðbólguvaldandi, svo Alþingi afnám þá verðtryggingu mjög fljótlega eftir samþykkt Ólafslaganna, með einu léttu pennastriki, með mikilli þökk frá atvinnulífinu sem hafði einnig kvartað sáran yfir því að þurfa að uppfæra launagreiðslur reglulega.
Það er svo margt sem við getum gert á Íslandi – rík þjóð með mikla félagslega nánd sökum stærðar ætti að geta verið framarlega á flestum félagslegum sviðum. Á sama tíma er harkalega mikil Bjarts í Sumarhúsum stemming hérna eins og þessi dúndur grein fer ágætlega yfir.
Við getum gert svo mikið betur við okkur sjálf, og þau einu sem standa í vegi fyrir því erum við sjálf – og síðan óheiðarlegt fólk í atvinnulífinnu og á þingi en við þurfum ekkert að hlusta á sérhagsmunavælið í þeim frekar en við viljum. Fullt af samfélögum stýra sér nefnilega ekki eftir vilja einhverrar smáklíku og kalla það eina mögulega lífið.
1 comment

^* ^fólk ^sem ^selur ^alltaf ^stöðugleika ^er ^að ^selja ^íhaldinu ^stöðnun.