Heimildin [Ríkissáttasemjara til að leggja fram miðlunartillögu] óumdeild og ekki háð samþykki deiluaðila [samkvæmt fyrrv. forseta ASÍ og fyrrv. Ríkissáttasemjara]

4 comments
  1. Málið er samt að hann var ekki að miðla málum, hann er að misnota þessa heimild til að hjálpa einum aðila deilunar að þröngva sínu tilboði upp á hinn aðila deilunar.

    Hann er búinn að gera sig gjörsamlega vanhæfan sem hlutlausur þriðji aðili í þessari deilu.

  2. Held að Ríkissáttasemjari hafi fulla heimild til að gera það sem að hann er að gera. Og að ráðfæra sig við báða aðila áður en hann gerir þetta er formsatriði.

    Sólveig er brjáluð af því að hún vildi semja miðlunartillöguna sjálf, Halldór hjá SA er brjálaður af því að hann var búinn að slá afturvirkar launahækkanir af borðinu þegar það var gengið frá borðinu í seinasta skiptið. (hann taldi að Sólveig yrði sett af fyrir það).
    Þannig að báðir aðilar eru ósáttir við þessa miðlunartillögu (sem er gott).

    Held samt að Ríkissáttasemjari hefði átt að leyfa verkföllunum að eiga sér stað og ef að allt var í stál ennþá eftir það að leggja þetta fram.

    Það er Eflingar að tryggja þátttöku í kosningum. Og þessi lög eru hönnuð til að lítill minnihluti geti ekki mætt og sagt nei við öllu.

  3. Ef þið haldið að [fyrrverandi Ríkissáttarsemjari](https://rikissattasemjari.is/portfolio/asmundur-stefansson-rikissattasemjari/), sem hoppaði úr ASÍ í fjárfestingarbanka og síðan hinummeginn við samningarborðið, sé hlutlaus frekar en einhver sem hoppaði beint hinummeginn við borðið eftir stutta viðveru í ASí þá þurfið þið að læra að leita ykkur að heimildum um fólk áður en þið takið allt sem það segir sem guðspjall 🙂

    Þetta er í besta falli fólk að beygja lýðræðislega ferla undir vilja sinn, til að brjóta aðra lýðræðislega ferla. Það þarf ekki að styðja Eflingu, eða Sólveigu, til að gera tilkall um eðlilega stjórnsýsluferla. Það er bókstaflega ein túlkun á fasisma þegar fólk beygir lýðræðið svona undir sig til að þvinga hópa fólks til að gera eitthvað sem þau vilja ekki gera sem í þessu tilfelli er að neyða þau til að vinna á kjörum sem þeim þóknast ekki.

  4. Ekkert mál. Það er auðvelt að taka afstöðu með Eflingu bara út frá málefninu, en það þarf að horfa á stóru myndina og í réttu samhengi.

Leave a Reply