
Ég tel að topparnir í Sjálfstæðissflokknum hafi fengið afturhaldssegginn Jón Gunnarsson til að fá fram sínum vilja og gera hann að blóraböggli til þess að koma ákveðnum óvinsælum málum í gegn, klára skítaverkin áður en hann fer á eftirlaun og Guðrún Hafsteinsdóttir tekur við. [1](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-01-06-heldur-ad-hun-fai-radherrastol-strax-i-mars).
Jón Gunnarsson reynir ítrekað að koma á lagnirnar nýju frumvarpi útlendingalaga sem hefur verið harðlega gagnrýnt.Annarri umræðu um útlendingafrumvarpið var fram haldið á Alþingi í dag og hafa þingmenn rætt málið í tæpar 40 klukkustundir og þá aðallega þingmenn Pírata. Fá önnur mál hafa komist á dagskrá síðan þing kom saman í síðustu viku. [2](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-02-01-storukeppni-a-althingi)
Gerir sér lítið fyrir og sendir 300 hælistleitendur til Grikklands. [3](https://www.frettabladid.is/frettir/verdi-ad-koma-i-veg-fyrir-mestu-fjoldabrottvisanir-islandssogunnar/)
Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að brottvísun Hussein Hussein og fjölskyldu hans frá Íslandi til Grikklands hafi verið ólögleg. [4](https://www.frettabladid.is/frettir/hussein-hussein-kominn-til-islands-asamt-fjolskyldu-sinni/)
Blæs á gagnrýni yfirmanns hjá OECD um Samherjarannsókn, enda besti vinur Þorsteins Más.
[5](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2022-10-27-blaes-a-gagnryni-yfirmanns-hja-oecd-um-samherjarannsokn)
Nýtt frumvarp um forvirkar rannsóknarheimildir tilbúið.
[6](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2022-09-22-nytt-frumvarp-um-forvirkar-rannsoknarheimildir-tilbuid). Með því verða lögreglu veittar heimildir til að hefja rannsókn, stunda umfangsmikið eftirlit, fylgjast með ferðum fólks á almannafæri, afla gagna um persónulega hagi þess og leggja hald á eignir, án rökstudds gruns um að viðkomandi hafi framið afbrot eða ætli að fremja afbrot. [7](https://heimildin.is/grein/16025/)
Rafbyssur í notkun í lok árs eða byrjun þess næsta. [8](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2023-02-01-rafbyssur-i-notkun-i-lok-ars-eda-byrjun-thess-naesta)
Mikil andstaða við ákvörðun Jóns um að selja TF-SIF, eftirlitsvél Landhelgisgæslunnar.
[9](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-02-03-mikil-andstada-vid-akvordun-jons-um-ad-selja-tf-sif)
[Þetta er ógeðslegt](https://heimildin.is/blogg/pall-asgeir/thetta-er-ogedslegt/)
4 comments
Mér finnst eins og Brynjar Níelsson hafi verið notaður á svipaðan hátt líka, sendur í fjölmiðla til þess að segja umdeilda hluti um hvað sem er til að dreifa athyglinni frá því sem er í raun og veru að gerast.
Þetta er einmitt tilfinningin sem ég fékk, eða þá að honun er slengt fram þegar það eru önnur óþægileg mál í umræðunni.
Óþægileg umræða um Lindarhvol? Hvað með að ég uuuuuu *stokka spilastokk og vel eitt* uuuu sel flugvél Landhelgisgæslunnar??
Ég heyrði að Jón Gunnarsson ætlaði að gera Kannabisnotkun refsilausa áður en hann hætti.
Það verður kallað **fíkniefnavörn.**
Fyndið að þú haldir að einhver flokkur hafi langtímaplan. Hvað þá að hafa einhverja tvo vitleysinga til að gera dirty work.
Þú ert að ofmeta íslenska pólitík.
Jón Gunnarsson er bara að reyna að búa til einhver mál sem klárast ekki án hans aðkomu svo hann geti klárað sín fjögur ár.
Svona er þetta og svona verður þetta