
Fyrir stuttu var þráður þar sem fólk tjáði sig um allskonar tengt einelti eða einhverskonar kúgun á vinnustað.
Hver er ykkar tilfinning eða reynsla af hlutum sem fjallað er um í þessari grein?
[https://www.dv.is/frettir/2023/1/31/sunna-lysir-fjarhagslegu-ofbeldi-vinnustodum-med-thessu-fylgja-oft-hotanir/](https://www.dv.is/frettir/2023/1/31/sunna-lysir-fjarhagslegu-ofbeldi-vinnustodum-med-thessu-fylgja-oft-hotanir/)
Ég t.d. tengi við það neðsta í greininni á núverandi vinnustað en persónuafsláttinn á öðrum sem ég vann á fyrir mörgum árum.
2 comments
Þetta er því miður ótrúlega algengt og hjá mörgum fyrirtækjum orðið kerfisbundið.
Ég hef lent í þrssu með persónuafslátinn og það kom ekki fram á launaseðlinum. Ég sat uppi með skuldina við ríkið afþví launagreiðandin neitaði og ríkið vildi meina að ég gæti ekki sannað að launagreiðandin hefði gert þetta vitlaust.
Hef líka lennt í að vera á jafnaðarkaupi sem var aðeins 50kr yfir dagtaxta og meirihluti vaktana voru kvöld og helgarvaktir. Vinnuveitandinn fékk ferilskranna, símanúmerið og aðrar upplísingar frá vinnumálastofnun og ég mátti ekki seija nei við starfinu nema missa atvinnuleisisbæturnar í 2 mánuði. Ég reyndi að útskíra fyrir þeim að launin stæðust ekki lög en fékk bara að svona væru reglurnar. Ég varð því að bíða eftir að gera verið sagt upp sökum niðurskurðs til að komast aftur á atvinnuleisisbætur og vinna að því að komast í betra starf. Það er algjört helvíti að reyna að losna frá svona viðbjóðs yfirmönnum ef maður getur ekki komist strax í annað starf. Vinnumálastofnun hjálpar eingum.