
Er að rækta microgreens heima og vantaði ljós og sitthvað smálegt í viðbót. Hélt að það væri no-brainer að fara í risabúðina hjá Garðheimum. [Ljós](https://www.gardheimar.is/is/gardurinn/raektunarkassar/plontuljos-led-nr1-15w-60cm) þar á 16k og [standur](https://www.gardheimar.is/is/gardurinn/raektunarkassar/bordstandur-fyrir-grodurljos) fyrir það á 5k.
Datt svo inná síðuna hjá Litlu Garðbúðinni á Selfossi sem var með nákvæmlega sama [ljós](https://litlagardbudin.is/product/raektunarljos-led-15w-nr-1/) á 10k og sama [stand](https://litlagardbudin.is/product/standur-fyrir-raektunarljos/) á 3k.
Svo hitti ég á þau í Kringlunni daginn eftir í staðinn fyrir að fá þetta í pósti, frábær þjónusta.
Tengist þeim ekkert, bara mjög ánægður með að lítill aðili sé að bjóða svona góð verð og langar að dreifa boðskapnum ef þið eruð í svipuðum hugleiðingum!
Edit: Væri gaman að heyra um fleiri svona dæmi ef þið eigið þau!
4 comments
Krónan með ógeðslegt hakk á 100kr meira á kg en kjötkompaní (mjög gott hakk)
Ótengt en ég sakna hydroponics dótsins sem IKEA var að selja
Ágætis græjur og voru á mjög góðum prís
Get ekki komið með eigið dæmi, en þetta er æði því það eru bókstaflega nokkrir dagar síðan ég byrjaði að pæla í því af alvöru að rækta salat innandyra og fór á stúfana eftir ljósum og fleiru! Þannig að þetta gagnast mér heilmikið 😀
16k fyrir ljós. Er sjálfur með turbo ræktun á grænmeti og nota 600w hps lampa sem kostaði 16k plús 6k fyrir peruna. Þetta er eins og að vera með hitabeltisljós heima hjá sér. Allt vex eins og illgresi. Tómatar eru huge og allt undir þessu.