Hvers Konar bjáni er þessi maður

Telur tímabært að hægt verði að gera börn arflaus á Íslandi


13 comments
  1. Sýnist þetta hjá honum snúast fyrst og fremst um að *geta* skotið arfinum að næsta ættlið, ss barnabörnum sem eru að reyna að koma fótum fyrir sér frekar en fullorðnum börnum á fimmtugs og fertugsaldri. Þó engan vegin að skylda arfinn þannig

  2. Það er fátt hættulegra en stakur einstaklingur sem heldur að hann hafi svörin, þrátt fyrir að það svar stangist alfarið á við langvarandi hefðir, og sækist eftir því að festa sýn sýna í lög.

  3. Það þarf miklu hærra crown authority en við erum með núna til þess að koma á primogeniture. Hann verður bara að læra á smokkinn.

  4. Þetta þarf ekki að vera svona flókið. Best væri að einfaldlega hætta þessari vitleysu og heimila fólki að ráðstafa eignum sínum nákvæmlega eins og því sýnist.

  5. Bíddu er ég að skilja þetta rétt… er ekki hægt að ráðstafa arfi eins og maður vill á Íslandi? Ég gerði ráð fyrir að það væri hægt að gera erfðaskrá og gefa eignir sínar hvert sem maður vill?

  6. Það ætti að vera á valdi einstaklingsins hvernig þeirra arfi er dreift til ættingja. Ég hef sjálf verið í hugleiðingum með erfðaskrá mína en finnst of flókið að útbúa það, það ætti að vera mun einfaldara. Er sagt að muni erfast bara til foreldra minna. Sem er fínt mín vegna en væri til í að litla systir mín myndi erfa líka þar sem ég sé hana næstum sem mitt eigið afkvæmi, þar sem ég hjálpaði mikið að ala hana upp frá æsku. En veit ekki hvernig það er séð ef ung manneskja er að útbúa erfðaskrá. 🦊

  7. Kjánaleg hugmynd, er hið minnsta mál hjá fólki að bara styrkja börnin sín með arfinum sem það fær ef það þarf ekki lengur á arfinum að halda. Óþarfa vesen að breyta þessu kerfi á þennan hátt.

    Edit: Spes downvotes, finnst fólki virkilega sniðugt að fólk hafi minna frelsi yfir hvað gerist við arfinn sinn?

  8. Það er ótrúlegt að sjá þær fjallabaksleiðir sem fólk vill fara til að leysa vandamál með ofureinfalda lausn. Erfa frá ömmu frekar en mömmu? Leiguþak? Kjaftæði út í eitt þegar fíllinn er bersýnilegur inni í herberginu.

    Byggja Fokking Meira.

    Ég vil fá fjórar kommablokkir í hvert einasta hverfi á höfuðborgarsvæðinu. En nei, gerum allt nema það, sjáum hvar við verðum stödd eftir önnur tíu ár.

  9. Ég myndi bara gefa þeim arfinn áður en ég dræpist svo ég þyrfti ekki að gefa skattinum tvöfalt af peningunum.

    Dóla því út yfir nokkur ár á læstan reikning hjá þeim sem opnast við dauða minn.

  10. Almennt séð tel ég óþarfi að breyta þessu. Það ætti helst að vera hægt að gera börn arflaus ef um er að ræða augljós skatta undanskott og aðra slíka gjörninga sbr. þau mál sem tengjast ákveðnum sægreifum og sjávar útvegs fyrirtækjum.

  11. Þetta minnir mig á einstakling sem ég þekki sem á tvö fullorðin börn. Viðkomandi hefur leitast eftir því að ná að gera eitt af börnunum sínum arflaust. Umrætt barn er í mikilli neyslu, og virðist ekki eiga afturkvæmt. Og foreldrið á eftir að skila af sér töluvert fé, og viðkomandi telur að ef barnið á eftir að fá þetta fé að það eigi eftir á enda á bál og brand. En kerfið leyfir það ekki.

  12. Hann á við þá til þess að sleppa einni kynslóð og fara beint í barnabörnin. En ég spyr afhverju ætti maður ekki að geta skrifað erfaskránna sína bara eftir sínu höfði?

Leave a Reply