Verðin og launin sem fólk er orðið “vant” og tölurnar sem það er með í hausnum að mjólkin ætti að kosta og skúringarkonan ætti að vera með í laun geta verið mjög úreltar ef fólk pælir ekki nóg í verðbólgu.

Til Viðmiðunar, skv [tölum hagstofu](https://hagstofa.is/verdlagsreiknivel) eftirfarandi er “jafngilt”:

1.000.000kr árið 2023

~800.000kr árið 2018

~700.000kr árið 2013

~500.000kr árið 2008

~400.000kr árið 2003

~300.000kr árið 1993

~100kr árið 1950.

5 comments
  1. Ég og frúin vorum að taka húsnæðislán fyrir nokkrum mánuðum. Það í sjálfu sér er ekki í frásögur færandi nema að láninu okkar samkvæmt erum við í raun að veðja á það að verðbólga muni vera yfir 7% í að minnsta kosti þrjú ár samfleytt til að við “græðum” á að taka lánið. Við töldum það vera vel sloppið, og hingað til stefnir í að við höfðum rétt fyrir okkur.

    Það að Ísland er hangandi í 10% verðbólgu og ekki sér fyrir enda á því er verulega ógnandi tilhugsun.

  2. Það verður nú líka að taka þetta inn í myndina.

    Launavísitala fer úr 131,3 árið 1993 í 858,4 fyrir árið 2022. 554% hækkun.

    [launavísitala](https://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Samfelag/Samfelag__launogtekjur__2_lvt__3_arstolur/LAU04200.px/table/tableViewLayout1/?rxid=39771303-21cf-40ec-92c8-bcb39dc9df12)

    Miðað við [m12 VNV](https://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Efnahagur/Efnahagur__visitolur__1_vnv__1_vnv/VIS01000.px/table/tableViewLayout1/?rxid=cbc95e92-be1b-4bcb-b1f1-ecb7003a0c57) þá hefur kaupmáttur verið töluverður á þessu sama tímabili

Leave a Reply