Hvar eru varð­hundar markaðs­frelsis nú?

8 comments
  1. Það er ekkert leyndarmál að margir sem segjast vera frjálshyggjusinnar eru í rauninni stjórnhyggju- og félagshyggjusinnar.

    Á sama tíma eru margir sem segjast vera félagshyggjusinnar meiri frjálshyggjusinnar en þeir þykjast.

    Svona mála varpa kastljósi á alla gervimennina.

  2. “Varðhundar hins Frjálsa Markaðs” hafa oftar en ekki slegið mig sem “Varðhundar sinna eigin forréttinda”. Ég hef í raun aldrei séð neinn verja hinn frjálsa markað á eigin kostnað, eins og ég er sjálfur tilbúinn að verja hluti eins og aðgengi að leikskólum burt séð frá efnahagsstöðu án þess að vera sjálfur foreldri, eða barn.

    Ef þú ert ekki tilbúinn að standa í hugsjónarbaráttu nema það gagnist þér persónulega þá ertu ekki að standa í neinni hugsjónarbaráttu heldur bara sérhlífni.

  3. >Það leiðir einfaldlega af því að Eflingarmenn eru bara fólk að berjast fyrir bættum kjörum. Því kemur ekkert við hvað aðrir gera í framhaldinu eða hvort X, Y eða Z. Það eina sem skiptir það fólk máli í þessu samhengi er að tryggja sér betri kjör og nota til þess samningstöðu sína til fulls, ekki bara þannig að hún sé þæginleg fyrir aðra.

    Við höfum 60 ára reynslu af íslenska hagkerfinu sem sýnir að þegar launaskrið fer af stað, þá endum við alltaf á verri stað 3 árum síðar þegar verðbólgan étur upp allar launahækkanir, og rústar húsnæðismarkaðinum, því allir eru með verðtryggð lán. í þokkabót erum við svo ósamkeppnishæfari á alþjóðamarkaði, fyrirtæki fara á hausinn í verðbólgunni, og við endum með færri störf í boði.

    Ég ætla ekki að segja að SA séu að reyna að verja hagsmuni allra íslendinga, ég er ekki svo veruleikafirrtur, en þeir eru allavega að nálgast þetta vandamál frá sjónarpunkti raunveruleikans og þeirra upplýsinga og reynslu sem við höfum.

    Efling virðist hins vegar alveg til í að pissa í skóna sína, og endurræsa verðbólguruglið frá 8. og 9. áratugnum.

    ​

    Ef að þú ert með verðtryggt lán, þá er það þér ALLS ekki í hag að endurræsa þessa vitleysu.

    á meðan sit ég hérna í Bretlandi og horfi á sömu verðbólguna hækka allt; launin mín, matvörurnar, húsnæðisverð… allt nema lánið mitt. Ég borga svo restina af húsinu upp með vasaklinki eftir nokkur ár og hlæ alla leið í bankann.

  4. “Höfundur er viðskiptafræðingur og vonast til að vera rengdur eða sjá fordæmingar frá þessum hópum.”

    ok ég hló

  5. “Allir sem trúa á og vilja frjálsan markað, allir þeir sem vilja að einstaklingurinn hafi fullt samningsfrelsi, ”
    Það er ekki í boði fyrir einstaklinga að semja við atvinnurekandann beint í þessu tilfelli.
    Vinnumarkaður á Íslandi er alls ekki frjáls markaður. Það eru alls konar samkeppnishamlandi reglur sem giilda.
    Atvinnurekandinn getur því ekki hagað sér eins og það myndi gera á frjálsum markaði, þ.e. reka þá sem ekki sætta sig við launin og ráða aðra ef þeir geta.
    Þ.a. ég skil ekki alveg hvað hann er að fara með þessu.

  6. Þetta er nú bara nákvæmlega það sjónarmið sem frjálslyndir hafa haldið fram í þessu máli.

    En vissulega er rétt að þeir sem kenna sig við frjálslyndi eru ekki alltaf frjálslyndir. Svona eins og allir félagshyggjumenn sem hafa komist til valda eru ekki félagshyggjumenn þegar á toppinn er komist.

    Flott samt að opna á umræðuna um þetta, því að þetta, eins og lang flest samfélagsmál, eru miklu umfangsmeiri þegar kemur að frjálslyndi eða forræðishyggju heldur en þetta endalausa væl um hvað fellur til hægri eða vinstri.

    Það virðist vera of erfitt fyrir suma að kyngja því slæma við eigin hugmyndafræði í stað þess að vega og meta kosti og galla og taka umræðuna.

    Frjálslynt viðhorf viðurkennir rétt þessara einstaklinga, sem og allra, að hámarka eigin ávinning með öllum tiltækum ráðum að ofbeldi undanteknu. Það fylgja því vissir ókostir, en kosturinn er aukið einstaklingsfrelsi sem ætti að vega þyngst.

  7. Það sem frjálsi markaðurinn mun leiða af sér er að hótel munu bjóða ræstingar út í verktöku hjá dagar þrif eða öðrum ræstingafyrirtækjum. Það kemur að því að aðkeypt þjónusta mun verða ódyrari en að vera með fólk á launaskrá.

    Það hefur verið þróunin í mikið af stofnunum og fyrirtækjum, í gamla daga var alltaf ræstitæknir sem var fastráðin en það er að verða liðin tíð, ætli það verði ekki þróunin hjá hótelunum líka. Það er allavega mitt gisk.

  8. Frjálshyggjumenn eru á móti töxtum og lágmarkslaunum, vinnumarkaðsmódelið á Íslandi er mjög langt frá því að vera einhver útópía frjálshyggjumanna. Reynslan er bara sú að þessi hópur hefur hægt um sig í þjóðfélagsumræðunni.

Leave a Reply