Myndband frá Íslandshótelum af verkfallsvörðum – Vísir

11 comments
  1. Nú veit ég ekki betur þannig ég spyr. Hvernig getur Sólveig verið svona viss um að það sé verið að fremja verkfallsbrot vegna þess eins að hótelið er starfandi. Er það verkfallsbrot að nýta starfsmenn í öðrum stéttarfélögum til þess að fylla í tómið á meðan verkfall stendur yfir? Það er það eina sem mér dettur í hug ef hún leyfir sér að vera svona sannfærð á því einu.

  2. Það er rosalega erfitt að halda með þessari konu þó maður styðji starfsmennina. Væri í lagi ef andstæðingar hennar myndu mótmæla fyrir utan heimilið hennar? Leyfið þessum ferðamönnum að fá frið og njóta frísins sem þeir borguðu fyrir.

  3. samkvæmt henni er það verkfallsbrot að þeim takist að halda starfsemi gangandi, hún skilur ekki hvernig hótelið sé starfandi þegar “mikilvægasta fólkið” er ekki við störf.

    í hvaða raunveruleika myndi starfsemin stoppa eftir 1 dag í verkfalli hluta starfsfólks.

    það er nokkuð ljóst að hún vill refsa fyrirtækjunum og er ekki í samningaviðræðum,
    ætli hótelin hætti ekki að ráða inn eflingar fólk og stofna kannski nýtt félag eins og Play

  4. Djöfulsins íhaldsbæli er þetta Reddit. Ekkert nema einhverjir pabba strátkar neð hor að tala gegn réttlætisbaráttu láglaunafólks. Skammarlegt.

  5. Auðvitað þarf hennar fólk að fá að sinna verkfallsvörðslu, en Guð hvað hún gerir það erfitt…

    Konan skýtur sig í fótinn í hverju skrefi. Ef hún væri ekki svona rosalega þrautseig og öflug, þá væri hún löngu búinn að missa fæturnar, og eðlilega.

  6. Var ég eini sem fékk kjánahroll af þessu myndbandi og þurfti að hætta horfa?
    Hún á svo erfitt með að koma öðruvísi fyrir en sem hvítt hyski því miður.

  7. Staðreyndin svart á hvítu, hvort sem fólk vill samþykkja það eða ekki, er sú að þetta hótel helst ekki í rekstri án starfsfólks Eflingar. Svo einfalt er það bara.

    Eins ætti starfsfólk Eflingar að gera sér dag og kíkja á hótel Íslandshótel á milli kl 17 og 20 til að athuga hvaða fólk er að manna eldhúsin.

    Það langar mig að sjá, það langar mig að sjá tekið upp og sent út í beinni.

  8. Ég er búinn að fatta þetta. Ástæðan fyrir því að Reddit er svona mikið íhaldsbæli og hægrisinnað er að hérna geta allir tjáð sig undir nafnleynd. Íhaldsrakkanir og undirlægjur auðvladsins geta þá tjáð sig óhindrað og sett fram andfélagslegar skoðanir sínar án þess að taka á byrgð á þeim eða staðið með þeim andspænis raunverulegu fólki.

Leave a Reply