Fullnaðarsigur Eflingar gegn sáttasemjara sem fór út fyrir sínar heimildir

7 comments
  1. Dómurinn virðist snúast um það að Sáttasemjari hafi vald til þess að þvinga deiluaðila til þess að kjósa (“ótvírætt heimilt að hafa frumkvæði að atkvæðagreiðslu”) en hafi engan rétt á því að fá félagatal frá deiluaðilum til þess að framkvæma kosninguna.

    Er þetta ekki eins og ef löggan hefði heimild til að fremja hjá þér húsleit en hefði enga heimild til þess að fara inn í húsið ef þú segir nei takk?

  2. Hey já talandi um verkföll á olíudreifingu, ætli það gæti ekki talist með sem mögulega róttækastu umhverfisaðgerðir Íslandssögunnar? ¯\_(ツ)_/¯

  3. Kapítalisminn sker í báðar áttir.

    Það var fáránlegt að telja það í lagi að sneiða fram hjá stjórn Eflingar og reyna að koma í veg fyrir að hópur starfsfólks í frjálsu samfélagi stundi sína hagsmunabaráttu af sannfæringu og krafti með því að láta ríkið þrýsta á að það samþykki samning sem aðrir samþykktu.

    Já, Sólveig er ótrúlega fráhrindandi manneskja, en hún hefur fullan rétt á að ganga svona langt til að tryggja hagsmuni síns fólks.

    Þessi niðurstaða er eitthvað sem allir sem vilja búa í frjálsu samfélagi án öfgafullrar aðkomu ríkisins ættu að fagna.

  4. Þetta er orðið spennandi mál. Hvað verður næsta skrefið?
    Breyta lögum í snarhasti eða hvað?

  5. Það er fáránlegt að kalla það sem svokallaður “ríkissáttasemjari” setti fram “miðlunartillögu” þar sem það eru engar málamiðlanir eru í þessu plaggi né var þetta tillaga heldur fyrirskipun.

  6. Þetta er verulega spes dómur, byggir nær eingöngu á lögskýringargögnum og umsögnum um lögin þegar ákvæðið var sett inn í þau varðandi miðlunartillögur.

    Held að þetta sé ekki beinlínis rétt túlkun á þeim gögnum.

    Eins mikið og ég held að Ríkissáttasemjari hafi hlaupið aðeins of geyst til með að leggja fram miðlunartillöguna áður en fyrsta bylgja verkfalla var búin að fá að bíta aðeins.

    Þá held ég að þessi dómur Landsréttar hafi gert þessum lögum ekki rétt skil né tilgangi þeirra. Og skilið eftir tilgangslausan lagabálk sem að þarf núna að breyta og gera mun þrengri og mögulega óhagstæðari fyrir deiluaðila.

  7. Er þá ekki bara næsta skref að leigja rými í Smáralind og láta kjósa með blaði og penna? Fólk mæti bara með skilríki og loggi sig inn á minar síður hjá eflingu til að sanna aðild?

Leave a Reply