Sammála öðrum gjaldmiðli, en það er ósennilegt að sá gjaldmiðill yrði evran.
Evrópusambandið fer ekki leynt með það að ásælast Ísland(og Grænland) þannig að ég efast þau myndi leyfa okkur að einhliða taka upp evruna án aðildar. Með fullri virðingu, þá gróflega ofmetum við menningarleg tengsl okkar gagnvart “siðmenntuðu Evrópu” til að byrja með. Svo ekki sé minnst á endurheimtusinana í Danmörku og Noregi.
Kanada- eða bandaríkjadollar miklu heldur, þakka þér sko fyrir.
Hvaða rök eru fyrir því að halda í krónuna ?
>Stór hluti af þeirri verðbólgu sem við erum að sjá núna er innfluttur og krónan ræður ekkert við það
Ef verðbólga er innflutt þá hefur gjaldmiðillinn ekkert um það að segja. Verðbólgan væri sú sama eða jafnvel verri ef við værum með evru.
Það er eins og fólk fatti ekki að í hvert skipti sem að fasteignamarkaðurinn fer á flug með furðulegum hækkunum þá fylgir því alltaf verðbólguskot í kjölfarið.
Hvers vegna?
Jú, vegna þess að þá eykst heildarmagn íslenskra króna í umferð mjög hratt. Og það býr til verðbólgu. Það er ekkert annað afl í íslensku efnahagslífi sem hefur eins mikil áhrif á verðbólgu í dag og hröð hækkun á húsnæðismarkaði.
Að taka upp evru myndi reyndar slá vel á þennan vanda, örhagkerfið Ísland myndi engin áhrif hafa á heildarmagn evra í umferð. En það hefur engin áhrif á innflutta verðbólgu eins og það er kallað.
Gott hjá Heiðari en betra að flýta sér hægt því nú eru væringar á alþjóðamarkaði.
Mesta kjarabótin væri náttúrulega að losna við sjálfstæðismenn eða koma þvi þannig fyrir að þeir mergsjúgi ekki allar auðlindir Íslands (þar með talið þegnana).
Get alveg sagt að við hefðum ekki viljað vera með evruna í hruninu. Að ganga í ESB og taka upp evruna mun ganga harkalega að okkar auðlindum, orku og fisk.
Viljum við sama vaxtaumhverfi og ESB lönd? En orkuverð?
Talsmenn evru og ESB eru mjög góðir í cherry picking á hvað er svona rosalegt gott fyrir okkur að breyta en nefna aldrei hverju við þurfum að fórna. Mætti segja að við séu heimsmeistarar að finna lönd sem gera 1-3 hluti betur en við en 200 hluti verr, en samt er boðskapurinn að við eigum að bera okkur saman því allt er svo glatað hér.
[Every time I see Icelanders voting the same old people back into power that wrecked their economy in the first place.](https://youtu.be/WS2Bsq5PDmU)
Býr á landi með næst hæstu laun í heiminum og bestu auðdreifingu í allri Evrópu. “Hey, af hverju gerum við ekki radíkal fjárhagslegar breytingar, seljum landið undan okkur og tökum upp gjaldmiðil sem er bara notaður af löndum sem eru í verri fjárhagslegri aðstæðum en við? Því verðbólgan er mikil og húsnæðisverð er alltof mikið og kannski, bara kannski myndi það hjálpa okkur að taka upp annan gjaldmiðil, en bara kannski.”
Væri meira til í að heyra um tillögur varðandi það að tækla vandamálið þar sem það leggur sig. Er ekki að sjá neina concrete lausn í því að breyta öllu kerfinu eins og það leggur sig.
Mætti tækla þá úreltu og ótrúlega skemmandi hugsun að húsnæði sé fjárfesting. Alveg mögulega sú allra mest skemmandi hugsun sem fyrir finnst í nútíma samfélagi. Bókstaflega allt lækkar í verði með tíma og það meikar sense því ástand vörunar batnar nú ekki með tímanum og hús eiga að vera heimili en ekki gróðarvél. Fyrirtæki og fjárfestar eru byrjaðir að kaupa húsnæði til að leigja út eða bara til að halda í nokkur ár, vitandi það að fjárfestingin mun skila sér. Finnur ekki neina aðra fjárfestingu sem er guaranteed safe bet og þessu þarf að breyta eins flótt og auðið er.
8 comments