Efling boðar til fleiri verkfalla

3 comments
  1. Það er erfitt að sjá hvernig þetta er annað en tilgangslaus eyðsla á peningum úr verkfallssjóðnum þeirra sem væri betur geymdur fyrir stóra slaginn sem allt stefnir í eftir ár. En hey, gangi þeim sem best og vonandi fá þau það sem þau vilja útúr þessu.

    Edit: Landsréttur virðist hafa gefið út að þetta er bara alls ekki tilgangslaust hjá þeim.

  2. Það verður engin samúð með Eflingu eftir 2-3 daga af engri eldsneytisdreifingu á höfuðborgarsvæðinu. SA þarf ekki einu sinni að hafa fyrir því að stunda spuna, næstu vikur verða ekkert nema fréttaflutningur af kaos í boði Eflingar.

    Finnst mögulegt að Sólveig og co. séu að lesa verulega skakkt í stemmninguna og stuðningin sem að þau hafi frá öðrum verkalýðsfélögum sem að eru flest búin að semja.

    Það væri SA í hag að leyfa þeim að eyða öllum sjóðum sínum núna og þurfa að sitja út næsta “Stóra slaginn” sem að verður eftir ár hjá öllum hinum félögunum.

    Sólveig er að veikja samstöðu verkalýðsfélaganna með því að ganga ekki í takt við hin félögin. Hún er ekki að fara að semja um betri kjör en það sem að aðrir fengu. Það er bara staðreynd.

    Finnst ansi líklegt að hér sé bara ein manneskja sem að spilar illa með öðrum að fullnægja sínu eigin egói og að komast í fjölmiðla fyrir að “taka slaginn”.

    Þetta er ekki besta leiðin til að snúa á SA og Halldór karlinn.

Leave a Reply