Fólk komi ekki frá Venesúela til að nýta vel­ferðar­kerfið

11 comments
  1. Er þetta persónuleg skoðun hennar eða? Ég stundum skil ekki þetta íslenska þingfólk.

    Er ekki umræðan undanfarið búin að snúast um myndband frá Venesúela þar sem einmitt er verið að tefla því fram að Ísland bjóði upp á slíkt?

  2. Eitthvað sem er ekki talað um en er verið að fylgjast með hjá stofnunum er dæmi um Íslendinga sem flytja inn fólk fyrir kynlífsþrælkun. Það hefur gerst og gerist ennþá. Væri til að umfjöllun um innflutning á fólki fengi betri umfjöllun.

  3. Hárrétt. Hér eru allar lúxusrútur uppbókaðar af Venesúelabúum sem hingað koma í laxveiði og þyrluferðir. Þá er röð, alla leið út á Ásbrú, í fimm stjörnu svítuna á Hótel Keflavík.

  4. Vá, ég vissi að þessi grein myndi lenda í gríttan jarðveg hér á r/Iceland en ég var ekki að búast við þessu snjóflóði af rökleysum

  5. Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig einhver getur samstundis haldið að:

    a) Það sé hræðilegt að vera öryrki og gamalmenni á Íslandi

    b) Útlendingar geti auðveldlega komið hingað og lifað fínu lífi á spenanum hjá því opinbera

    Velferðakerfið hérna sökkar og það er varla hægt að draga fram lífið á því. Þess vegna er glatað að vera öryrki/gamall hérna. Og útlendingar sem koma hingað og hafa ekki greitt skatta í langan tíma hafa lítinn sem engann aðgang að því.

    Auglýsingin frá Venesúela var ekki að segja að það væri ýkt auðvelt að komast á spenan hérna, áherslan var á að launin hérna væru góð og almannaþjónusta eins og heilbrigðiskerfi og menntun væru góð.

    Það er enginn að flytja til Íslands til að lifa á spenanum sem iðjuleysingi vegna þess að það er ekki hægt. Fólk vill flytja hingað til þess að vinna og búa hérna.

  6. Ég skil þessa þingkonu ekki. Hún segir bara eitthvað. Það á eftir að finna út hvort þetta sé raunin eða ekki. Hún veit ekkert um það.

    Hún er svo lélegur stjórnmálamaður.

  7. Ef að einhverjir eru að koma hingað til að lifa á velferðarkerfinu þá held ég að þau fari fljótt tilbaka eftir nokkra mánuði á sultarlaunum, skítaveðri og félagslegri einangrun.

    En hitt er annað að ég get vel trúað því að þessi hópur séu ekki flóttamenn í lífshættu, heldur fólk í leit að betra lífi og ættu því ekki að geta fengið alþjóðlega vernd.

    Þeim er hinsvegar frjálst að sækja um landvistarleyfi hér eins og öllum öðrum jarðarbúum.

  8. Það er svo kómískt hvað sumir segja fyrst fólk var ekki að svelta og átti þak yfir höfuð sér þá þekkti það ekki fátækt eins og venezúela menn eða eins og börnin sem þau hafa séð í Afríku.

    Íslendingar og whataboutism 🤌🏼

Leave a Reply