„Ó­trú­lega bí­ræfið“ að aug­lýsa mis­notkun á ís­lensku vel­ferðar­kerfi

9 comments
  1. Það er löngu vitað að mikið af fólki sækist hingað bara fyrir velferðarkerfið. Nágranna þjóðir okkar eru farin að átta sig á þessu. Segir sig frekar sjálft, við leysum ekki neitt með að taka inn endalaust af fólki (ég get samt tekið undir það að aðstoða fólk frá löndum þar sem stríð er í gangi).

  2. Við eigum að taka á móti flóttafólki svo lengi sem það hefur ekki marktækt slæm áhrif á efnahag Íslands og Íslendinga (og kemur þar í veg fyrir að við getum tekið á móti fleira flóttafólki í framtíðinni), og á meðan hlutfall þeirra í íslensku samfélagi sé ekki of stórt.

    Mitt huglæga mat er að við séum búin að ganga fram af okkur í báðum atriðum, en ég hef svosem ekki haldbær gögn fyrir því.

    Sem svo gerir það auðvitað erfitt þegar okkur ber siðferðisleg skylda að taka á móti ákveðnum stórum hópi fólks sem er að flýja stríð, þegar við höfum þegar tekið á móti stórum hóp fólks sem kannski þurfti ekki nauðsynlega vernd.

  3. “Heilagur bandarískur áróður Leðurblokumaður”

    Hvaða velferðar kerfi? Þetta sem Sjallanir eru að reyna eyða?

  4. Þú getur ekki verið með öflugt velferðarkerfi, sem notabene Ísland stærir sig að á alþjóðavettvangi nokkuð oft og ekki ætlast til þess að fólk vilji sækja hingað til þess að njóta þá góðs af því. Vandamálið er ekki fólkið sem er að sækja í þetta kerfi, vandamálið er að einhver þarf að borga fyrir þetta sem Íslendingar gera með háum sköttum á öllu með tímanum munu einhverjir þessara einstaklinga síðan leita á vinnumarkaðinn og þá taka þátt í að borga fyrir það. Því myndi ég telja að mikilvægara sé að spurja hvernig getum við nýtt allt þetta góða fólk sem kemur hingað í þeirri von að leita að betra lífi til þess að taka þátt í því með okkur. Tel að það sé ekkert í eðli fólks endilega að vilja að misnota sér velferðarkerfið, þó gildi fólks eru mismunandi en að við myndum njóta góðs af því frekar að hjálpa fólki að komast í það að vera þáttakendur í íslensku samfélagi. Mögulega er velferðarkerfið of gjafmilt en frekar er mikilvægara að finna þá mögulega leiðir til þess að hindra að fólk geti misnotað það en tel einnig mikilvægt að hjálpa því fólki sem kemur hingað að fóta sig í íslensku samfélagi og virkja það of margir “útlendingar” eiga það til að vera svolítið utangarðs í íslensku samfélagi og það þarf ekkert að vera þannig.

  5. Meðal Íslendingur:

    “Hvað er þetta 1% gráðuga ríka níska lið að safna til sín öllum verðmætum. Þau eiga að gefa MÉR peninginn því það á að vera jöfnuður!”

    snýr sér svo við:

    “Ég ætla ekki að gefa þessum fátæku 99 prósentum neitt sem er alltaf að reyna sníkja MINN pening af mér. Ég og hinir ríku vinir mínir eigum þennan pening og skiptum honum bara á milli okkar. Það á að vera jöfnuður, en sumir eru bara jafnari en aðrir. Kemur ekki til greina að láta þetta fátæka lið fá krónu!”

  6. Eina ástæðan fyrir því að flóttamenn kosta okkur pening er sú að við erum svo ótrúlega þver að leyfa þeim ekki að vinna á meðan umsókn þeirra velkist um í kerfinu í marga mánuði eða ár.

    Þessi auglýsing talar n.b aðalega um að hér séu launin svo góð. Mannneskja sem flytur hingað út af launum er ekki að flytja hingað til að vera birgði á velferðarkerfinu.

    Almannatryggingakerfið er nú þegar þannig að aðfluttir útlendingar eiga takmarkaðann rétt nema þeir hafi borgað hér skatta í töluverðan tíma.

    Það er viðvarandi skortur á vinnuafli hérna. Hvert er vandamálið? Auðvitað sækir fólk eftir að flytja til landa þar sem er betra að búa, og allt er í frekar miklu fokki í Venesúela.

    Og ef við ætlum að dæma það hversu æskilegt fólk er eftir því hvað það kostar ríkið mikla peninga, þá ættum við að sækjast eftir því fyrir alla muni að fólk sem er búið er að fæða, ala, og mennta annarstaðar og er strax tilbúið til þess að koma hingað og vinna og borga skatta. Það kostar tugmilljónir og áratugi að taka Íslending frá því að vera nýburi yfir í að vera arðbær framleiðslueining fyrir samfélagið, svona ef við ætlum að þykjast hafa svona miklar áhyggjur af því hvað fólk kostar ríkið.

  7. Þarf ekki bara að breyta kerfinu þannig að fólk sem kemur hingað fær ekki neitt fyrr en það hefur unnið sér inn réttindi til þess.

  8. Hvernig væri að hugsa um okkar eigin fólk sem hefur unnið hér og skapað verðmæti í marga áratugi og borgað skatta. Efast um að öryrkjar og aldraðir hafi það jafn gott og margt af þessu fólki hér. Þetta er bara sýndarmennska að bjarga fólki utan úr heimi og láta lægst settu þegnana lepja dauðann úr skel.

  9. “þeir sem komi frá Venesúela fái fjögurra ára viðbótarvernd á meðan þeir sem koma frá Úkraínu, stríðshrjáðu landi, fái vernd í eitt ár.”

    Hver er ástæðan bak við þetta?

Leave a Reply