Þetta er mjög umdeilt vandamál sem mér finnst ekki vera rætt nógu mikið, byrjum við að telja á 0 eða 1?

Samkvæmt Wikipediu byrjaði 21.Öldin þann 1.Janúar 2001 og henni lýkur 31.Desember 2100.

https://www.visir.is/g/2017285857d
https://www.ruv.is/frettir/erlent/sidasta-barn-19-aldarinnar-lest-i-gaer

Það komu 2 fréttir um að síðasta manneskjan sem fæddist á 19.öld væri látin, ein fæddist árið 1899 og hin árið 1900, hvort er það?

Fólk rífst hvort að inngangshæðin í byggingum séð ground floor eða 1.hæð. Fólk deilir líka um hvort að núverandi áratugur hafi byrjað 2020 eða 2021.

Hvað finnst ykkur?

5 comments
  1. Fæðumst við 1 árs eða 0 árs? Við erum sennilega öll sammála um að frá fæðingu og næstu 364 (365 ef hlaupár er að finna) sé fyrsta ár lífs.

    Mitt mat er alla vega að 21. öldin byrjaði 1. janúar 2000.

  2. ég er það gamall að ég þegar ég byrjaði í grunnskóla var það í 0 bekk en fór í 2. bekk árið eftir.

    fanst það mjög asnalegt.

  3. Ert ekki á tugsaldri fyrr en þú ert síðastatug og eins. Væntanlega er verið vinna með sama kerfi þegar kemur að öldum.

    Það hjálpar kannski að tímatalið var ekki búið til sama ár og upphaf þess er sett, svo nefndin hefur lítið þurft að velta þessu fyrir sér.

    En niðurstaðan þar er kannski að ár var alda?

    Það má líka athuga að tímatalið okkar er rómverska tímatalið, fyrst uppfært af júlíusi. Það eru engin núll í rómverskum tölum, þannig… byrjar að telja á einum? 🤷‍♂️

  4. Talning er háð samhenginu. Í tölvufræði og forritun er algengt að byrja að telja á 0, en í daglegu máli byrjar talning venjulega á 1. Varðandi hæðarnúmer hafa mismunandi lönd og menningar mismunandi venjur. Í sumum löndum er jarðhæð álitin fyrsta hæð, en í öðrum er fyrsta hæðin skilgreind sem hæðin fyrir ofan jarðhæð (https://en.wikipedia.org/wiki/Storey).

Leave a Reply