
[https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2021/11/09/play\_muni\_hagnast\_a\_naesta\_ari/](https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2021/11/09/play_muni_hagnast_a_naesta_ari/)
[https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2023/02/15/tap\_play\_nam\_6\_6\_milljordum/](https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2023/02/15/tap_play_nam_6_6_milljordum/)
Hvað finnst ykkur um þetta flugfélag? Er bara allt í lagi að lífeyrissjóðir fjárfesti í svona?
Stjórnin veit augljóslega ekki hvernig á að reka flugfélag.
Til samanburðar þá var gríðarlegur hagnaður hjá öðrum lággjaldaflugfélögum, Ryanair var t.d. með einhverja miljarða dollara í rekstrarhagnað
14 comments
Þú ættir bara að njóta niðurgreitt flugs og fljúga sem oftast á meðan það er í boði
En svona i alvöru þá er markaðurinn ennþa of lítill fyrir 2 flugfélög með hub á Íslandi
Hef tekið eftir því að það virðast vera margir sérfræðingar í rekstri hér inni
Birgir forstjóri hefur nú oft talað um að þeir hafi reiknað með að fyrstu árin verða rekin með tapi.
En allir helstu fjárfestar hugsa til langstíma. T.d. Spotify er enþá rekið með tapi, en allir þeir sem fjárfesta í Spotify eru að hugsa til mjög langs tíma.
En ég hef fulla trú á Play
Eiga fyrirtæki að vera í blússandi gróða frá degi 1? Mjög eðlilegt að það sé ennþá taprekstur hjá Play þar sem félagið er tiltölulega nýstofnað og því ekki hægt að fella þann dóm að stjórnin veit augljóslega ekki hvernig á að reka flugfélag. Meðal sætanýting hjá play er 80,3% og mikill tekjuvöxtur.
Þetta mun elta Iceland Express og Wow Air í þessu Boom-bust hring lággjalda flugfélagsins á Íslandi.
Eru að veita svipaða þjónustu og Icelandair fyrir minni pening (Face it, Icelandair er komið á þann stað í dag) og oft á áfangastaði sem að hafa minni hagnað.
Þessi félög endast í einhver ár og svo springa þau vegna þess að þau stækka of hratt.
Þetta er nefnilega ekki styrkt af ríkinu eins og Icelandair
Only on reddit
Fyrirsögn á fréttamiðli : “Play mun hagnast á næsta ári”
Reddit: “Play Air í ruglinu”
Ertu mikið að spá í því í hverju lífeyrissjóðurinn þinn er að fjárfesta?
Ertu að spá í að skipta um lífeyrissjóð?
Finnst þér þú hafa það hlutverk að segja öðrum hvernig þeirra lífeyrissjóðir sjá um sína eignastýringu?
Skil ekki alveg hvað þessi þráður er að gefa í skyn
Flaug með þeim um daginn, þetta er ágætis flugfélag. Veit ekkert um rekstur þess, vona þeim gangi bara vel í framtíðinni
Ég vil fá Iceland express aftur
Meðalávöxtuns alls fluggeirans frá upphafi er neikvæð, bæði á skammtíma og langtíma skala. Sem er magnað. Að stofna flugfélag er ein skilvirkasta leiðin til þess að tapa fjármagni, og nei, lífeyrissjóðir ættu alls ekki að fjárfesta í lággjalda flugfélagi sem er nýstofnað og ekki enn standandi á eigin fótum. Að það skildi yfir höfuð vera komið á opinn markað segir margt um hversu hlægilega skammsýnir og barnalegir íslenskir fjárfestar eru.
Nova skilaði tapi að mig minnir fyrstu sjö árin, var svo selt á 15 milljarða um tíu árum eftir stofnun
Bibbi kallinn að keyra en eitt fyrirtæki í jörðina. Ætli hann sé ekki að skræla úr þeim eins og með hin
Hvernig ætlaru að bera saman glænýtt íslenskt lággjalda flugfélag við stærsta flugfélag Evrópu sem hefur verið í rekstri í 29 ár
Eina sem þessi póstur segjir mér er að þú hefur aldrei komið nálægt fyrirtækjarekstri