
„Ég held að það liggi þannig fyrir að þessi kjarasamningur er í gildi og það er óheimilt að halda uppi verkföllum á þessu sviði vegna þess að það er í gildi kjarasamningur,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari.
3 comments
Ætti ekki að koma neinum á óvart að vinur Davíðs sem var skipaður dómari við hæstarétt af því að hann var vinur Davíðs túlki hlutina með þessum hætti
Þetta er náttúrulega algjörlega brjálæðisleg og fáránleg túlkun á lögunum. Hann segir að miðlunartillagan var borin löglega fram, og þar sem hún hefur ekki verið felld með atkvæðagreiðslu ætti að líta sem svo á að hún hafi gengið í gildi. Algjörlega glórulaus túlkun.
Staðreyndin er sú að samningsaðili viðræðnanna eru ekki allir meðlimir Eflingar, heldur er það Efling sem félag. Og Efling sem félag hafnaði miðlunartillögunni (enda fólst engin málamiðlun í henni). Tillaga að samningi fer ekki í atkvæðagreiðslu til meðlima Eflingar nema Efling sem félag, þ.e. forysta Eflingar, fyrst samþykki tillöguna. Það er ekkert flóknara en svo.
Jamm. Þetta er túlkun á málinu.