“Verkbann er tæki atvinnurekenda til að draga stéttarfélög að samningaborðinu í kjaradeilum – með sama hætti og stéttarfélög geta beitt verkföllum.
Í verkbanni er fólki bannað að mæta til vinnu og fær ekki greidd laun. Atvinnurekendum er þó heimilt að veita undanþágur frá banninu, og búast má við að slík undanþága yrði veitt fyrir starfsemi sem varðar almannaöryggi, rétt eins og hefð er fyrir hjá stéttarfélögum. Verkbanni var síðast beitt í kjaradeilu sjómanna og útgerðarinnar 2016.
Stéttarfélög greiða félögum sem sæta verkbanni jafnan bætur úr vinnudeilusjóði sínum til að bæta upp fyrir launaleysið.
Ljóst er þó að vinnudeilusjóður Eflingar gæti ekki staðið undir greiðslum til allra félagsmanna ef verkbann dregst á langinn. Samkvæmt nýjustu ársskýrslu Eflingar, sem Innherji greindi frá í upphafi árs, stóð vinnudeilusjóður Eflingar í þremur milljörðum króna.
Miðað við 25.000 króna greiðslu á hvern vinnudag, eins og Efling hefur greitt félögum í verkfalli, yrði sjóðurinn tómur á sex dögum.”
Sniðganga fyrirtæki sem samþykkja verkbann. Ömurlegt að vilja ekki greiða sómasamleg laun og á sama tíma greiða sér háar arðgreiðslur. Græðgi.
Getur einhver útskýrt fyrir mér verkbann því að mér finnst þetta svo sturlað konsept ef ég skil það rétt.
Ég er eiginlega merkilega spenntur að sjá hvort þetta verði samþykkt af félagsfólki SA.
Fyrir mer liggur þessi vandi hjá stjórnvöldum. Ég er buinn að sjá að bæði Efling og SA hafa rétt fyrir sér. Og hvorugt þeirra getur í raun vikið frá því sem þau fara fram á. Efling gæti samið eins og hin stéttarfélögin jú, en það gildir til Januar a næsta ári.
Önnur stéttarfélög gerðu 1 árs samning í ljósi þess að verðbólgan er 10% og vextir sögulega háir, sem greiða. Næsta kjaralota verður enn erfiðari en þessi.
Það eru alltof lág laun. En á sama tíma eru flest venjuleg fyrirtæki að berjast í bökkum. Í veitingageiranum er launakostnaður kominn í rúmlega 50%.
Á sama tíma eru nokkur fyrirtæki að greiða sér milljarða ofan á milljarða í arð. Sem skekkir þessa stöðu all svakalega. Hér þarf að brúa bilið og setja ný lög. Það þarf að endurskoða skattakerfið, tryggingarkerfið og allt þar á milli.
Ísland er ekki land sem þolir sömu misskiptingu og Bandaríkin. Það er komið að þolmörkum hvað fáir eiga allt.
Það er líka komið að þolmörkum varðandi innflytjendur. Við getum ekki
skapað hér yfir 8000 störf á ári án þess að það dragi niður laun, og við getum ekki fundið 8000 íbúðir á ári fyrir þetta fólk án þess að húsamarkaðurinn fari í rugl. Við erum rétt rúmlega 400.000. Öll áhrif eru margfölduð hér.
edit. Þetta er í raun testament fyrir það hversu illa Ísland hefur verið rekið hér undanfarin ár.
Þetta er ekkert skemmtilegt, en þetta er augljóslega eini mótleikurinn sem þau hafa meðan Efling ætlar að handvelja það starfsfólk til að fara í verkfall sem hefur mest impact, eins og olíuflutningamenn, til að fara sparlega með verkfallssjóði en samt hafa sem mest áhrif.
Þetta er áhrifaríkt en rosalega drastískt skref hjá SA.
Hræðilegt fyrir fólkið og samfélagið, en verkföll Eflingar eru ekkert jákvæð heldur.
Efling blæðir úr vinnudeilusjóðinum og SA tryggja að verkföllin dragist ekki á langinn þar sem að vinnudeilusjóður Eflingar hefur svona 5-6 daga líftíma þegar 23000 manns fá 25.000 kr á dag.
Spurning hvað gerist í lok vikunnar. Heldur Efling áfram að halda úti verkföllum og geta fyrirtækin innan SA stoppað í meira en viku?
NB. þetta mun stoppa skóla, leikskóla og fleiri stofnanir vegna þrifa mála sem dæmi. Þannig að á morgun eða hinn munu sitja fleiri heima hjá sér en Eflingarfólk
Þessi deila er orðin svolítið bull, Efling vill búa til stéttaskiptingu á milli landsvæða og SA vill ekki hreyfa sig um 1 kr. frá SGS samningunum.
Er farinn fastlega að búast við lagasetningu á þessa deilu frá ríkinu á föstudaginn.
Megum við þá ekki búast við samúðarverkföllum annarra stéttarfélaga, spennó!
Uno reverse!
Ef þú ert með fólk í vinnu og getur ekki borgað þeim þannig að það geti náð framfærslu, þá er reksturinn ekki að standa undir sér. Það að keyra rekstur á lágmarkslaunastefnu svo árum og áratugum skiptir gerir þig að drullusokki sem atvinnurekanda.
Það fer að skipta máli hver stjórnar…
Tiltölulega skiljanlegt þannig lagað.
SA vill ekki halda áfram að borga 30.000 manns laun (og að þau haldi áfram að borga í verkfallssjóð) þegar 100 eða svo starfsmenn geta farið í verkfall og stoppað allt saman.
Ósamhverfa staðan þar sem Efling gat stoppað allt saman án neins kostnaðar fyrir sig var aldrei að fara að verða raunin.
s..hit erum við komin aftur í leikskóla?
ef þau geta ekki samið saman þá ætti að reka þau bæði, þrátt fyrir fyrri störf.
ég er alveg til í launahækkun, en ég vill að allir fá hið sama, versta við það
er að allt annað hækkar.
15 comments
That escalated quickly!
“Ég fer í verkfall!”
“Nei ÉG boða verkbann!”

Tekið úr frétt RÚV https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-02-20-sa-boda-atkvaedagreidslu-um-verkbann-20-thusund-eflingarfelaga