Sigríður Á. Andersen, er í lagi hjá þér?

27 comments
  1. Dropi í hafið ef þetta hefur eitthvað að segja, og skrítið að velja þetta atriði til að benda á, eða er hún að benda á allt sem henni dettur í hug? Hef ekki áhuga á að gá að því á twitterinu, eða hvað sem þetta er.
    Algjörlega taktlaust.

  2. Hehe félags útí bæ, meina jú félag útí bæ sem er þó einnig hagsmunafélag hinsegin fólks vísu eru þau orðin nú tvö en við nefnum hitt ekki á nafn þar sem þeim er illa við fólk sem er trans. Semsagt þá sinnir þetta félag ýmissi starfsemi sem er um að gera að kynna sér. Þó ég vísu hef mínar ástæður fyrir því að ég tengi mig ekki við samtökin 78, þó ég fari ekki nánar útí það þá veit ég að þessi samtök eru ekkert vaðandi í peningum, ég man þegar ég hitti framkvæmdastjóra samtakana að hann talaði um að þau væru nú að gera mjög mikið fyrir lítið þannig séð eða mig rámar í það smá síðan kannski hefur það eitthvað breyst en ég held að þetta sé hið eðlilegasta mál að auka útgjöld til þeirra samtaka. En þó er það helst gert vegna umræðu ef þið munið um þetta svokallaða bakslag í hinsegin málum.

  3. Hey vó, flott að benda á svona hluti. Ætli hún bendi næst á styrki sem einkafyrirtæki fá, eins og fjölmiðlar? Eða félagasamtök sem sjúga til sín hundruðir milljóna á ári, það er stjórnmálaflokkarnir?

  4. Bíddu var ekki verið að staðfesta hennar fáránlegu starfslokasamninga fyrir fyrrum ríkislögreglustjóra.
    Glymur hæst í tómri tunnu…

  5. hahaha svo reynir hún að snúa þessu í að þetta sé ekki þráður um S78, heldur um ríkisfjármál,

  6. Þjóðkirkjan fær 3-4 milljarða á ári til að gera ekki fokking rassgat

    Samtökin 78 fá 55 milljónir og sinna afskaplega mikilvægu starfi

    “AfHvErJu eRuM vIð aÐ fJáRmAgNa þEsSa HoMmA!?”

    Algjör mannvitsbrekka

  7. Það eru bankastjórar og forstjórar með hærri laun en þetta einir og sér – í fyrirtækjum sem var bjargað fyrir tilstilli skattpeninga almennings nota bene.

    En sure. Félagasamtök sem fá styrk upp á 40 milljónir úr ríkissjóð á ári er vandamál…

    Hvenig væri nú að Sjálfstæðisflokkurinn gerðist alvöru stjórnmálaflokkur svona einu sinni. Sakar varla að prufa er það?

  8. Bara vel orðlaus yfir þessu hjá konunni.
    Hvernig í ósköpunum er bara hægt að fara þangað á núll einni.
    Auðvelt að benda á þjóðkirkjuna eða styrki til landbúnaðar.
    En hún af öllu valdi að skrifa þetta.
    Sjálfur skil ég ekki hvernig nokkrum heilvita manni datt í hug að gera hana að ráðherra, hvað þá kjósa á þing.

  9. Áhugavert hversu fáránleg þessi athugasemd hennar er og hvað svarkerfið virðist átta sig á því en samt sem áður er svarkerfið með sínar eigin fáránlegu hugmyndir. Líkt og það sé munur á því hvort ríkið gefi mannréttindasamtökum eða einkafyrirtæki pening þegar kemur að hagtölum.

    Verðbólga er, var og verður alltaf peningalegt hugtak sem má rekja til peningamagnsaukningar útgefanda lögeyrisins. Í okkar tilfelli er það Seðlabanki Íslands.

  10. Ekkert endilega ósammála, samtökin 78 þurfa líklegast ekki svona mikið fjármagn, ríkið er með alltof há útgjöld og þarf að minnka þau á öllum sviðum, jafnvel hjá stofnunum eins og 78.

  11. Er hún í alvöru talað að reina að klína verðbólgunni á samkynhneigða? Þetta rugl í henni væri móðgandi ef þetta væri ekki aumkunarvert.

  12. Hún er búin að benda á mörg dæmi um aukin ríkisútgjöld upp á síðkastið

    Til dæmis:

    Ríkisrekin samanburð á verði matvöruverslana.

    Ríkisstyrkta stjórnamálaflokka.

    Ég skil alveg að það er (að mati sumra) langt seilst að gagnrýna aukin framlög til S78 en það er bara hluti af athugasemdum hennar og deginum ljósara að draga þarf úr framlögum ríkissins til margra málaflokka.

  13. Afhverju er ríkið með þjónustusamning við samtökin 78 ? Þetta hljómar eins og ágætis tækifæri til hagræðingar.

  14. Ekki eru það góð meðmæli fyrir vitsmuni aðdáenda Viðskiptablaðsins og Sigríðar Andersen ef þetta er það eina sem þarf til að gera þau brjáluð.

    Grifters got to grift.

  15. Skollans hommarnir og (pírir augun og horfir í lófann a sér) … verðbólgurnar þeirra!

Leave a Reply