Samkeppniseftirlitið: Álagning olíufélaganna af hverjum seldum lítra hefur rúmlega tvöfaldast frá því í maí 2022, farið úr röskum 30 krónum í meira en 70 krónur

7 comments
  1. Líka áhugavert:

    > Það sem vekur einna helst athygli er að Costco á Íslandi, sem hleypti lífi í samkeppnisumhverfi á eldsneytismarkaði hér á landi þegar það opnaði bensínstöð sína 2017 virðist hafa aukið álagningu sína til jafns við önnur íslensk olíufélög.

  2. Þetta er aðalega vegna þess að verð á olíu hefur hækkað.

    Eitt af því sem hefur ýkjandi áhrif á verðbólgu en er sjaldan talað um er að fyrirtæki eru flest með fasta prósentuálagningu á vörum. Þannig magnast allar verðhækkanir.

    Ef ég er að reka fyrirtæki og er harðákveðinn í því að hafa 50% álagningu á innkaupaverð og er að kaupa vöru á 100 krónur, þá sel ég hana á 150 krónur. Ef byrgi minn hækkar verðið um tíu krónur, þá hækkar verðið hjá mér upp í 165 krónur. Tíu króna aukning á innkaupaverði skilaði 15 króna aukningu út í verðlag til neytenda, og álagning hækkaði úr 50 krónum í 55 krónur.

  3. Hérna hvað er hlutfallið af heildinni?

    Hefur álagningarprósentan hækkað eða bara krónurnar sem að fást af heildinni?

  4. Álagningin er sá hluti verðsins sem olíufélögin taka til sín eftir að búið er að greiða fyrir eldsneytið og allar álögur á það.

    Þetta er hlutinn sem er notaður til að greiða allan kostað við reksturinn, laun **og svo arðgreiðslur eigenda.**

    Nú hef ég ekki trú á að laun og annar kostnaður hafi ríflega tvöfaldast síðan í maí í fyrra. Það þýðir að eigendurnir eru að fara að **stinga þessu mest öllu í eigin vasa** og láta okkur borga brúsann.

    Er þetta ekki barasta orðið arðrán núna.

Leave a Reply