Verkbann samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta

14 comments
  1. “Nærri 88 prósent þátttaka var í atkvæðagreiðslunni, og samþykktu ríflega 94 prósent þeirra verkbann.”

    Þessi neókapitalíska yfirstétt er komin á eitthvað nýtt level. Þetta er viðbjóðslegt að sjá.

  2. Mér finnst algjörlega fáránlegt að það sé til eitthvað sem heitir verkbann og er löglegt. Verkfall hefur sitt hlutverk þar sem það ríkir gríðarlegt valdaójafnvægi milli auðstéttarinnar og launþega, og verkfall er nánast eina tæki sem launþegar hafa til þess að knýja fram réttlátt kaup og kjör.

    Ég segi eins og Krummafótur, þetta er viðbjóðslegt að sjá.

  3. Það slæma fyrir SA er það að Sólveig er líklega eina manneskjan á Íslandi sem mun ekki hörfa í þessum chicken leik, hún mun láta þá setja verkbann í Mars.

  4. Mikið er ég ánægður með þessa framvindu mála.

    Vona að þetta endi með því að miðlunartillagan verði sett fram af Eflingu og hún verði felld af félagsmönnum.

    Sólveig Anna vann sitt sæti með atkvæðum 7% félagsmanna, í framhaldi af því rak hún allt starfsfólk skrifstofunnar og er nú í því að starta einhverju stríði sem sára fáir voru sammála um.

    Hún er ekki að gera neitt annað en að skaða íslenskan vinnumarkað enda var það áætlunarverk hennar og Gunnars Smára frá upphafi. Þau vilja fá athygli og búa til múgæsing svo Sósíalistaflokkurinn komist á þing í næstu kosningum.

  5. Getur einhver útskýrt lögin bak við þetta fyrir mér? Nú eru sterk lög um uppsagnarfrest en það er hægt að svipta tugþúsundum launum og vinnurétti eftir geðþóttaákvörðun?

  6. Fyrirsjáanlegt. Skil ekki hvernig þetta kemur nokkrum manni á óvart. Næstum því jafn fyrirsjáanlegt er hvernig endirinn á þessu máli verður.

  7. Ekkert nema aumingjar og feitir kettir. Fòlk à bara að sleppa að mæta ì vinnu ì nokkra daga, leyfa þeim að reka þessi elskulegu fyrirtæki sìn sjàlfir.

  8. Hvað gerist ef maður vinnur eftir verkbann? einum erlendum starfsmanni sem vinnur með mér er skítsama um þetta og ætlar ekkert að hætta að vinna. Veit að yfirmaður okkar og eigandi er á sama máli

Leave a Reply