https://www.instagram.com/reel/CpC-JUdIAja/?igshid=YmMyMTA2M2Y=

VERKBANN 😵‍💫
by u/AlternativeSpell8707 in Iceland

10 comments
  1. „Miðað við það sem ég hef séð finnst mér kröfur og aðgerðir Eflingar mjög hóflegar og réttlætanlegar. Þetta snýst um lífskjör fólk og mér finnst hegðun SA þeim ekki sæmandi og það er mikil vanvirðing gagnvart okkur að grípa til þessara aðgerða og þess vegna styð ég Eflingu.“

    [https://www.frettabladid.is/frettir/skilur-ekki-hvers-vegna-sa-vill-frekar-tapa-a-verkbanni-en-ad-haekka-launin/?utm_medium=Social&utm_source=Facebook#Echobox=1677155599](https://www.frettabladid.is/frettir/skilur-ekki-hvers-vegna-sa-vill-frekar-tapa-a-verkbanni-en-ad-haekka-launin/?utm_medium=Social&utm_source=Facebook#Echobox=1677155599)

    Svarið er einfalt. SA vill berja niður verkalýðshreyfinguna

  2. Hvers vegna er fólk ekki að sýna meiri kurteisi? Halldór Benjamín vill vel, ekki efast um það. Kannski ef Efling væri ekki með svona mikil læti og dónaskap myndi hann semja. En það mun ofdekrað vinnuafl á Íslandi aldrei skilja.

  3. “The Greatest Trick the Devil Ever Pulled Was Convincing the World He Didn’t Exist”

    Það er ótrúlegt hversu margir taka undir málstað sem rýrir þeirra eigin hag.

    SA vinnur fyrir þá sem eiga fjármagnið og eru að passa upp á þeirra hag. Hvernig þeim hefur tekist að sannfæra stóra hópa þjóðfélagsins um að þeir eigi meira sameiginlegt með SA og fjármagnseigendum heldur en Eflingu, þegar það er raunin, er ótrúlegt.

    Ef þú þénar undir 24 milljónum á ári, jafnvel meira en það, áttu meira undir hag Eflingar en SA.

  4. Nohh GSE&CO mættir. Þessi sem flaug um í einkaþotum og með flottu kaupréttina sína fyrir ca 15 árum síðan.

    Hvernig er það, var búið að gera upp launin til starfsmanna Fréttatímans? Þessir sem biðu eftir svörum um launin sín á meðan hann lét sig hverfa í næsta útvarpsstúdío til að tilkynna nýja verkefnið sitt?

  5. Er einhver með símanúmerið hjá Auðvaldinu svo ég geti gert símaat í þeim?

    Íslendingar alltaf tilbúnir að stilla öllum upp í fylkingar; Auðvaldið á móti Verkalýðnum…eins og þetta séu einhverjir vel skilgreindir hópar, einn vondur og kúgar hinn; þann góða. Auðvaldið hittist svo í Valhöll aðra hverja viku og ákveður hvernig þeir ætla að niðurlægja litla manninn næstu dagana.

    Grow up, ísland. Hættið þessari menntaskóla Marxisma-pólitík. Svona virkar veröldin ekki – hún er bara full af fólki sem er að reyna að hafa sitt fram. Sumir þeirra reka fyrirtæki. Ef fyrirtækið er ekki hagstætt þá er því lokað.

Leave a Reply