Erfiðar konur og rándýrir karlar – sem krefja aðra um kurteisi

4 comments
  1. Þetta er ekkert sem að er ekki vert að benda á held ég.

    Misskipting er orðin agaleg hérlendis og það er risastór hópur sem að mun ekki eignast eigið húsnæði á lífsleiðinni eða allavega ekki fyrr en þau erfa foreldra sína um sextugsaldurinn. Ekkert sem að bíður þeirra nema leigumarkaðurinn sem að er eins og villta vestrið og hirðir meira og meira af útborguðum launum fólks.

    Og þeir sem að eru ofar í stiganum eru úr tengslum við það hvernig það er að lifa svona.

    Þannig að það er því miður bara reiði fjöldans sem að getur breytt þessu og það þarf líka að skila sér í kjörklefanum. Því ef að þú ert ósáttur við núverandi ástand og kýst einhvern stjórnarflokkana aftur þá ertu ekki að biðja um breytingar.

    En já, góður lestur.

  2. Ein af grundvallarstoðum kerfisins sem hefur verið við lýði i hinum vestræna heimi er hægt að sjóða niður í eftirfarandi: **Við sem öllu ráðum lofum að halda kjörum ykkar sem allt gera nægilega góðum svo þið sjáið ykkur ekki hag í að efna til byltingar.**

    Þegar láglaunafólkið er farið að öskra er það ekki tilefni til þess að biðja um kurteisi heldur til að hlusta, enginn öskrar án þess að ástæða sé til.

    Að því sögðu, fari sólveig norður og niður.

  3. Að fara inn á hótel og stunda mótmælisaðgerðir undir dulgervi verkfallsvörslu, áreita ferðamenn, og hunsa starfsmenn, er ókurteisi og þeim sem það stundar til skammar.

    Að leggjast í lágkúrulegar persónuárásir á Bjarna þess eðlis að hann sé rasískur útlendingahatari sem hatar fátækt fólk er ókurteisi og þeim sem það stundar til skammar.

    Rosa þreyttur þessi málflutningur þar sem það er einhverskonar kvenfyrirlitning at misbjóða slíkt þegar gerandi er kona. “sTuTt Í eRfIðU kOnUnA!” Bara mótmæltu á yfirvegaðan máta svo við sem styðjum ykkur þurfum ekki að skammast okkar fyrir það. Ekki erfitt.

  4. Hvenær er nóg orðið nóg. Hættum að láta bjóða okkur þetta kjaftæði í þessum helvítis eiginhagsmunnaseggjum og tökum landið okkar tilbaka. Við þurfum byltingu og það núna!

Leave a Reply